fimmtudagur

Skólablogg...

Jájá, ferðasagan kemur bráðum í máli og myndum. Er bara að bíða eftir að geta sett myndirnar inn. Í stuttu máli var ferðin æðisleg!! Dansað uppi á borðum, 8 tímar í Louvre, skálað fyrir Eiffelturninum, allt frábært!!! Seinna.

Ég valdi núna áðan. Það var erfitt. Valið mitt hljómaði svona (í stafrófsröð):
ENS6B4 -> Reyndar að miklu leiti undirbúningur fyrir IBprófið, en eini enski bókmenntaáfanginn í boði! Svo er hann líka 4 einingar...
FRA703 -> Síðasti frönskuáfanginn minn í MH. Dettur ekki annað í hug en að velja hann!!!
ÍSL3T3 -> Tjáning og talað mál. Held að þessi áfangi myndi gagnast mér betur en galdraáfanginn og þess vegna fékk þessi forgang. Sorry Haukur...
LÍL121 -> Útskriftaráfanginn... Já, ó Guð, ég er að útskrifast!!!
LÍK631-> Jóga...
SAG203-> Síðasti kjarnaáfanginn minn, mikið var!
SPÆ503 -> Næ nú ekki eins mörgum áföngum í spænsku og frönsku, en allavega 5.

Varaval
ÍSL393 -> Galdraíslenskan fékk nú samt að vera fyrst inn í varaval:)
LAT103 -> Barátta milli latínu og ítölsku, en latínan er meiri grunnur fyrir ítölskuna svo...
SPÆ603 -> undanþága frá undanfara, næ kannski 603 líka... Svo eru það spænskar bókmenntir og tal, en ekki málfræði...;)

Stefnir í skemmtilega önn, þrátt fyrir að ég bíði enn eftir tækifærinu á rólegu önninni minni...