sunnudagur

Teljarinn minn er til margra hluta gagnlegur. í fyrsta lagi heldur hann tölu á heimsóknum hingað inn, ég sé frá hvaða landi viðkomandi er, hvaða þjónustuaðila hann notar, hvaða vafra, hvernig hann kemst inn á síðuna og margt fleira. Þetta síðasta, hvernig fólk kemst inn á síðuna, er oft áhugavert að skoða. Klikkar fólk á tengla á öðrum síðum, slær það inn slóðinni eða kemur af leitarvélum? Og Ef það síðasta er athugað, hvaða orð slær fólk inn?
Einhver leitaði að "Sokkabuxnablæti" og komst hingað inn...