fimmtudagur

Síðustu dagar...

eru búnir að vera góðir. Helgin byrjaði á afmæli í Flúðaseli, á laugardaginn var miðdeildarpartý heima hjá Aroni Axel og á sunnudaginn voru svo Ellingtontónleikarnir. Afmælisbarnið var ánægt með daginn, það var rosalega gaman að kynnast betur fólkinu í miðdeildinni og ótrúlega gaman að syngja aftur með stórsveitinni. Líka mjög gaman að hitta hollenska vin okkar aftur...



Á mánudaginn byrjuðum við svo að æfa Requiem aftur. Vááá, ég hlakka svo til að flytja það aftur!!! Líka mjög fyndið að sjá svipinn á nýja fólkinu þegar Funes Infermi byrjar af fullum krafti, ekki eins og við höfum verið í mánuð að ná hröðuninni...:þ
Í gærkvöldi fór ég svo á tónleika. Og enga smátónleika! Fór á Kiri Te Kanawa í háskólabíó og það var svo æðislegt! Vááá! Þessi kona er alveg mögnuð. Að hún sé 61 árs er ótrúlegt!

Annars er helst í fréttum að það eru innan við tvær vikur í París!!! Eftir 10 daga á ég eftir að sitja inni á kaffihúsi í París og lesa frönsk dagblöð. Eða eitthvað. Ég verð allavega í París!! Gistingunni reddað, verðum á Mije alveg í miðbænum og rétt við Latínuhverfið með öllum sætu frönsku háskólanemunum...;)