miðvikudagur

Ææ... Áfangablaðið er komið og í hvert skipti sem ég skoða það bætast við áfangar sem mig langar í. Er komin upp í 44 einingar... Af þeim eru 5 í kjarna. Jafnvel mér dettur ekki í hug að ég geti tekið 44 einingar svo við tekur höfuðverkur við að pikka út. Ég veit til dæmis að ég vel ekki þrjá íslenskuáfanga, en hvern þeirra?
Listinn minn er nokkurn veginn svona eftir fyrstu útstrikun:

Fra703 - áfanginn minn, kenndur í fyrsta sinn í sögu MH vegna beiðnar frá mér og Hauki:)
ens6B4 - Eini bókmenntaáfanginn í ensku!
Ísl343 - Leikhúsbókmenntir
Ísl393 - Galdrabókmenntir
Ísl3T3 - Talað mál
Íta103 - Kemur sér náttúrulega rosalega vel fyrir sönginn
Lat103 - Að öllum líkindum mjög gagnlegt til að bæta frönskuna og spænskuna
Lei103 - Spuni, leikir og leiklistarsaga
lík631 - Jóga
líl121 - Útskriftaráfanginn...
sag203 - Skylda...
spæ503 - Til að ná spænskunni almennilega

Sjitt, ég er í vandræðum...
Annars eru bara fjórir og hálfur dagur þar til ég fer til Parísar, og ég er komin með vegabréf!!:)