sunnudagur

Bloggleysið er á enda. Í bili allavega. Það er samt ekki skugginn af yfirhangandi ferðasögu sem hefur aftrað mér heldur almennur tímaskortur. Það er nóg að gera.

Ég gleymdi samt myndunum fyrir austan um helgina svo að ferðasagan kemur ekki strax. Ekki nema setningin :C'est la musique islandaise!!! Og svo var mér boðið á deit.

Eitt af því besta við að komast út úr bænum á veturna er að horfa á stjörnurnar. Og norðurljósin. Það er allt svo róleg, og svo ferðu út og horfir upp í himininn, hvað allt glitrar. Einu sinni fór ég með tveimur frændum mínum niður í fjöru og við stóðum saman og horfðum á norðurljósin. Allt í einu byrjaði einhver að snúa sér í hringi og svo snérum við okkur öll í hringi þar til okkur svimaði, þá duttum við niður í sandinn og lágum bara og horfðum á hvernig stjörnurnar og norðurljósin hringsnérust í kringum okkur. Það var ótrúlegt.

Ég fékk pínu jólafiðring í vikunni. Það er ekki annað hægt þegar maður syngur Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þorbergs. Það er kona sem ég dáist að. Hún og Jórunn Viðar. Fallegustu jólalög á íslenskri tungu held ég, Jól eftir Jórunni og Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu. Ég ætla samt bara að fá jólafiðringinn á mánudagskvöldum. Og annan hvern sunnudag í bili. Í svona tvær vikur enn.

Þetta er líklega nóg í bili.