Tvisvar á ári er án nokkurs vafa gaman að vera dreifbýlingur í menntaskóla. Í dag er þannig dagur. Í dag kom dreifbýlisstyrkurinn! Það er gaman að fá 180.000 krónur á ári fyrir það eitt að vera í skóla og með lögheimili utan Reykjavíkur...;) Í tilefni af þessu er ég að spá í að skreppa í bíó næst þegar ég fer í höfuðstaðinn (sem gæti orðið í næstu viku, á eftir að sjá vaktaplön) en það hef ég ekki gert síðan í febrúar þegar ég sá Une longe dimanche de fiancée á frönskum dögum. Það var mjög gaman. En það er dáldið langt síðan. Nú þarf ég bara að finna einhvern með mér, því það er hálfeinmanalegt að sitja ein í bíó og fáar myndir er svo nauðsynlegt að sjá. Það gerðist síðast þegar pabbi nennti ekki með mér á Spice World... Ef ykkur langar í bíó megið þið endilega hafa samband, annað hvort í sms eða hér á blogginu!
Annars er dagurinn í dag búinn að fara í garðvinnu. Lilja fór hamförum með sláttuvélina og ég og Jóna Guðlaug á eftir með hrífur. Svo núna er garðurinn nýsleginn og við þrjár eins og epli í framan. Það var 20°c hiti hér, mælirinn segir 27°c heitast en þá skein sólin líka á hann... Það er bara fámennt hér núna, mamma og Ingólfur Freyr í bænum því Ingólfur á að fara í aðgerð í fyrramálið, á að taka stóra kúlu sem hann er með á hálsinum...
Annars er ég að reyna að semja lag. Komin ágætlega af stað, en það fór rosalega mikið í taugarnar á mér að lagið minnti mig á e-ð lag sem ég mundi bara ekki hvað væri! Búin að brjótah heilann um þetta í tvo daga svo þetta er nú ekkert mikið líkt, en svo fattaði ég í dag hvað þetta minnti mig á, og ég varð ekki sátt við sjálfa mig... Ekki beint uppáhaldstónlistarmaðurinn minn þar á ferð...:S En eins og ég segi, það tók mig tvo daga að fatta þetta svo þetta er nú ekkert gífurlega líkt... Sem betur fer!
Annars er þetta alveg gífurlega lítill heimur! Var að fá lykilorðið mitt að íslendingabók og sló að gamni mínu inn nokkra vini mína til að athuga skildleikann. Sumir vita það kannski að afi hennar Maríu Vigdísar átti einu sinni Drangshlíðardal en þar bý ég núna, og fósturafi minn og amma keyptu af honum. Ég er hins vegar ekkert ættuð héðan sjálf, þó Guðni pabbi hafi alla ævi búið hér. Hins vegar erum við Maja næstum bara náskyldar, og það í gegnum Gest pabba og svo Trausta afa! Ólafsfirðinginn:) Erum skildar í 4 og 5 ættlið minnir mig... Þetta er lítið land:)
Nú er þetta blogg orðið leiðinlegt... Ætla að vinna aðeins í laginu, gera það aðeins meira að mínu og reyna að gera texta, og fara svo að sofa... Fjós í fyrramálið...:þ
fimmtudagur
ég er rík:)
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|