mánudagur

Það les þetta víst enginn lengur, allir annað hvort í útlöndum eða Reykholti eða hafa bara einfaldlega e-ð betra við tímann að gera! Allavega fækkar heimsóknum samkvæmt teljara. Skiptir ekki máli, þetta er aðalega fyrir mig...

Dagarnir líða hér í hálfgerðu tilbreytingarleysi, ég vakna og fer ýmist út í fjós eða passa krakkana, svo er hádegið, eftir mat förum við Lilja og rífum girðingar eða tökum til, svo er kaffi, og fljótlega eftir kaffi eru fjárhús og fjós. Eftir það er svo kvöldmatur og svo er sængin voðalega freistandi... Þannig að það verður líklega tilbreyting að fara að vinna á morgun, en þá er fyrsti dagurinn á Eddunni. Ég er reyndar búin að kíkja tvisvar á Ókyrrðina miklu sem er gjörningur í gamla Dagsbrúnarhúsinu í Skarðshlíð! Þar er Ragnar Kjartansson, aka Rassi Prump, klæddur sem draugur og spilar á gítar á milli 14-17 og svo 20-23, og hefur gert síðustu þrjár vikur! Mjög flott!

Ég var að heyra að hestamannaballið verði ekki fyrr en 24. júní, mér finnst það of seint:( Ég vil hafa það fyrir 17! Allavega e-ð sveitaball fyrir 17, plís! :(

Æi, ég nenni þessu ekki núna... Ætla að reyna að fara að gera e-ð uppbyggilegt...