Ég virðist hafa verið voðalega vinsæl núna um helgina. Í það minnsta var ég beðin um að vera á fimm stöðum núna á laugardagskvöldið! Egilstöðum, Vík, á kirkjudögum, miðbænum og vinnunni...
Ég fór semsagt með kór Langholtskirkju á djasshátíð Austurlands um helgina. Rútan pikkaði mig upp á afleggjaranum hér og ég fór og settist hjá Maju þar sem ég sat og spjallaði næstu, tja, 9 tímana eða svo... Og spilaði Solitarie í Herra Lennon;) Á meðan keyrði rútan sem leið lá alla leið til Egilstaða, í gegnum almannaskarðsgöng sem opnuð voru í tilefni komu okkar;) Allavega sama daginn. Á Egilstöðum fórum við á Hótel Valaskjálf og fengum að borða og fórum svo á mjög góða tónleika með stórsveit Reykjavíkur, svona kaffihúsastemning:)
Á laugardaginn voru svo okkar tónleikar á Eskifirði, þar sem við sungum Helgikonsertana eftir Ellington (hátíðin í ár var tileinkuð honum) og stórsveitin spilaði undir. Það gekk bara ljómandi vel og var geðveeikt gaman!!! Ég elska djass...
Nema hvað. Á tónleikunum á föstudag fer ég að kannast geðveikt mikið við einn trompetleikarann. Og er næstum viss um að ég viti hver það er, drengurinn heitir Ari og er Kárason, hann spilar á trompet, og er af seltjarnarnesi, ísland er það lítið að þetta hlýtur að vera Ari frændi minn, það er ég næstum viss um! En hann er kynntur sem Ari Gísli, og það passar ekki, og ég þori ekkert að segja, get ekki verið viss. Fer samt og spjalla við Jónsa, spyr hvort hann viti e-ð um strákinn því ég haldi að þetta sé frændi minn. Jónsi veit ekkert þá, en seinna um kvöldið fer hann og spjallar við stráksa! Og daginn eftir bókstaflega ýtir hann mér á hann og segir "þetta er frænka þín!" Ég alveg eins og kleina, "ertu ekki sonur hans Kára?" Og hann fattar ekki hver ég er, kannast samt greinilega við mig! Svo stendur hollenski trompetleikarinn upp (þeir voru bara tveir inni í sal að spila) og kynnir sig og ég kynni mig bara sem Dísu og Ari Bragi kveikir ekkert! Svo aðeins seinna segi ég Dísa Bogga, og það var alveg eins og að sjá kvikna á ljósaperu! Það kviknaði alveg á honum, hann fattaði um leið, "já, ertu ekki frá Sölvabakka!!"
Frekar fyndið... Gaman að vera á staðnum og vera stolt frænka þegar hann spilaði með Stórsveit Reykjavíkur í fyrsta sinn, ég meina, alls ekki margir sem komast þar inn 15-16 ára!
Svo hélt kórinn áfram til Mývatns og allan hringinn, en nokkur og þar á meðal ég flugum til Reykjavíkur. Gaman að segja frá því að á leiðinni er mér sýnd mynd af skakka turninum í Písa og ég spurð hvort ég vilji koma þangað á morgun... Sem ég náttla bara hlæ að eins og asni og roðna...
Fékk svo far með Gunnu Þórey og Þorgeiri austur seinna um kvöldið, of seint til að fara á hestamannaballið, en ég fékk mörg sms til að upplifa stemninguna þar! Sumir voru "sko alveh edrru!" Je ræt...;)
Það drukknaði enginn á fyrstu sundvaktinni minni. Vonandi helst það þannig í sumar.
Í dag heyrði ég lag og í gegnum huga minn fóru minningar úr tveimur partýjum. Eldgömlum partýjum. Danskeppni heima hjá Símoni Berg og svo Sindri að syngja heima hjá sér í afmæli hjá Jóa... Slitrur af texta hér:
Hún hafði sýnt mér þúsund andlit
að átta sig var ekki viðlit
(...)
Hún var í sandölum en engum kjól
á evuklæðunum á móti sól
Vitið þið hvaða lag og hljómsveit þetta er?;)
Og þetta sumar sem átti að verða algjört djammsumar... Ég komst ekki á Landeyjaballið þann 16., fór ekki á hestamannaballið, tók þá ótrúlega auðveldu ákvörðun að fara ekki á þjóðhátíð (þá vitið þið það sem reiknuðuð pottþétt með mér...) og ég veit bara ekki hvað! Meira að segja óvíst hvort míns komist á töðugjöld! En það á nú allt eftir að koma í ljós... Það er bara vinna og vinna og vinna! Mesta djammið sem ég sé fram á í sumar er ættarmót núna 8-10 júlí, en þessi ættarmót geta orðið hreint ansi skrautleg... á því síðasta brotnaði bara eitt bein og tognuðu 2 og þótti rólegt;) Samt pínu fúlt að ef farið væri einum ættlið ofar væri Maja líka á mótinu, það væri geðveikt! Við erum semsagt svona mikið skildar, mér finnst þetta allavega mikið því ég man svo vel eftir Stjönu langömmu og sameiginleg ættmóðir okkar var bara einum ættlið fyrir ofan það!
Maður á ekki að blogga þegar maður kemur úr vinnunni, þetta er úr einu í annað eins og dagbókin mín! Ég dríf mig í háttinn núna...

|