Í gær var 17. júní. Til hamingju Ísland, til hamingju Íslendingar. Deginum fagnaði ég að mestu leiti í vinnunni. Frá 7-15 og svo frá 19-22:30. Fór samt þarna í millitíðinni niður í Fossbúð þar sem ég hitti mann og annan, drakk gos og borðaði kökur, og tók myndir.
Í gær útskrifaðist líka sú fyrsta úr samlokunni góðu, GHA, úr menntaskóla. Til hamingju með það elsku Una!
Í gær urðu foreldrar mínar líka 20 ára stúdentar! 20 ár síðan þau luku MA! Til hamingju með bæði tvö!
Í dag er 18. júní. 18. júní er yfirleitt ekki talinn eins merkilegur og 17. júní, svo þann 18. gerist ekkert mikið óhefðbundið held ég... Allavega ekki ennþá, hjá mér...
Á morgun er hins vegar 19. júní! Þá hvet ég alla, konur og kalla, til að skunda á Þingvelli og fagna 90 ára kosningaafmæli íslenskra kvenna! Og náttla að kaupa kaffi og meðlæti af SSK, til styrktar góðum málefnum. Mamma er akkúrat í stjórn SSK og búin að vera upp fyrir haus að skipuleggja og baka og kaupa inn og allt mögulegt! Ég hins vegar kemst því miður ekki, því ég verð að vinna...
Farin að hlakka dáldið til mánudagsins þegar ég fæ frí, dáldið törn núna þessa helgi því ég er bæði á morgun og kvöldvakt fram á mánudag... En svo frí þá og bara kvöldvaktir á þri, mið og fim. Og svo aftur frí á föstudag, lengra nær vaktaplanið ekki í bili... Það er búið að vera alveg slatti að gera, 60 manns í mat á miðvikudag og 80 á fimmtudag, svo reyndar bara tæplega 40 í gær, og líklega e-ð svipað núna í kvöld... Ég er orðin verulega góð í að labba með, tja, 10- 15 óhreina grunna diska inn í uppvask, aðeins færri djúpa og taka 2-3 hæðir af bollabökkum inn og út úr eldhúsi! Auk þess sem ég er orðin ágæt í vínmenningunni, veit að GTR er mjög ferskt, og bragðgott hvítvín, rislinger er mjög, mjög sætt, Cato Negro er hefbundið rauðvín á meðan Lehmann, Shiraz er óhefðbundnara en mjög gott og vel óhætt að mæla með því. Það er ekkert smá sem maður þarf að kunna til að vera þjónn! Og nei, ef þið voruð að spá, maður fær ekki að smakka til að mynda sér sína eigin skoðun, heldur kemur lærður þjónn og kennir manni allt á þetta:Þ Svo þarf maður að fara rétt að þegar búið er að panta vínið! Segjum sem svo að e-r komi og panti GTR, þá þarf ég að ná í flösku, fara með hana að kúnnanum og sýna hana, bíða eftir að hann samþykki, fara með hana að þjónustuborðinu, opna hana á sérstakan hátt, fara aftur til kúnnans, hella örlitlu í glas þess sem pantar, leyfa honum að smakka og bíða eftir samþykki, hella þá í glösin hjá hinum, og enda á smakkaranum! Auk þess þarf kúnninn ALLTAF að sjá framan á flöskuna, miðann, ekki innihaldslýsinguna... Þetta og margt fleira er ég allt að læra, verð orðin góð í matarboðunum núna í haust;)
Fékk kort frá Leifi í póstinum í gær. Hann er bara úti í Þýskalandi! Ég er búin að reyna að hringja og hringja eins og brjáluð, ætlaði að spurja hvort hann nennti ekki að djamma um daginn, og hann alltaf með slökkt á símanum, nú skil ég afhverju...:þ Það eru bara ALLIR í útlöndum eða að fara til útlanda þessa dagana! Leifur í Þýskalandi, Una nýkomin frá London, Marta í Póllandi, Edda á Ítalíu, Kris farin til Englands, Ólöf í Brasilíu, amma og Jóna Finndís nýkomnar frá Florida, Bryndís, Lóa og fleiri nýkomin frá Spáni, Fjölskyldan í Hlíð á leiðinni til Danmerkur, Brynhildur á Álandseyjum, Hjalti að fara til Tyrklands, Einsi til Kanada, Maja og vinkonur á leiðinni til Spánar, Alla og Eyvi nýkomin frá Ítalíu... Maður er dáldið einmana hér á Íslandi... En hvað get ég sagt, ég er úti í sveit, það er ekki eins og maður hitti venjulega marga hér... Ég sakna ykkar bara...
laugardagur
17. júní
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|