miðvikudagur

Blogg?

Að blogga? Það er nú orðið svo langt síðan ég gerði það síðast að ég man varla hvað það er. En jú, ég er snúin aftur til að gleðja æsta aðdáendur og lesendur. Eða allavega til að skrifa e-ð um lífið og tilveruna.
Ég er byrjuð á Eddunni og klæðist því nælonsokkabuxum upp á hvern einasta dag. Martröð fyrir mig, því hundurinn minn hann Tryggur er verulega á móti þeim. Hann er búinn að rífa einar og gera margar tilraunir til að tæta í sig fleiri. Eins geng ég í gulum bol eða skirtu, og grænu, hnésíðu flugfreyjupilsi sem nær lengst upp á maga og dregst upp á mið læri eða ofar um leið og ég sest niður. Svo er ég ýmist á morgun eða kvöldvöktum, eða þá bæði. Þá í salnum. Veit ekki alveg hvernig þetta verður þegar sundlaugin opnar. Já, því Dísa litla er (vonandi, á eftir að fá skírteinið sent) orðin sundvörður. Fór á námskeið uppi á Laugarvatni í síðustu viku þar sem við fórum í gegnum skyndihjálp eitt og tvö fyrri daginn og skruppum svo út í laug á föstudaginn. Nema hvað, á fimmtudaginn fáum við svo að vita það að til þess að öðlast réttindi til sundgæslu þurfum við að standast sundpróf. Og þessi sundpróf eigum við akkúrat að taka daginn eftir! “Ekkert erfitt” segir karlinn, “600 metra á innan við 21 mín, 25 metra á 30 sek, 15 metra kafsund, 25m björgunarsund, e-ð þannig...” Ég var ekki sú eina sem gapti, “ekkert erfitt....”
Þannig að á föstudaginn var ég í sundi frá 10-16 og synti örugglega vel yfir kílómeter. Því ég mætti klukkan 10 til að hita upp og æfa mig. E-ð sem hefur greynilega borgað sig því ég næ sprettinum án nokkurra vandræða, treð marvaða, kafa eins og á að gera og syndi 20 metra kafsund! Svo setjum við nokkur eina upp á bretti og björgum “drukknandi” fólki á svona baywatch fleyg, og svo er komið að 25 m björgunarsundi m. jafningja, báðir í fötum. “Jafningi” minn reynist svo vera Jón Orri, sem er thja, allavega 15 cm hærri en ég og líka e-ð þyngri... En þessu næ ég! Og 600 metrunum á rétt rúmu korteri!!!Jæja… Ég ætla að fara að sofa í hausinn á mér núna, læt þetta duga í bili og blogga þá kannski meira fljótlega, ef ég fæ góð viðbrögð…;)