Það fer að verða einhæft að lesa um hversu mikið sé að gera hjá mér. Það er það samt ennþá. Eftir slétta viku (og svona eins og hálftíma til viðbótar) verður óperan Skuggablóm frumsýnd í Salnum í Kópavogi, og allir morgnar fara í sviðsetningu og æfingar. Og eftir tæpa viku verða nemendatónleikar þar sem ég syng þrjú lög og tríó. Ég er að vinna annað kvöld og alla helgina, á að vera í æfingabúðum í Söngskólanum, Nobiliæfingu, og læra lögin 140%. Þann tíma sem ég hef lausan reyni ég að finna aðferð til að klóna mig. Einhver?
Annars var ég að frétta að það væri ókeypis inn á Skuggablóm. Auðvitað á enginn að láta það framhjá sér fara, það er ekki á hverjum degi sem ykkur býðst að sjá nýja íslenska óperu frumflutta...;) Frumsýningin er á miðvikudaginn, og önnur sýning á fimmtudaginn. Svo ræðst það eftir aðsókn hversu margar sýningar verða til viðbótar. Mér finnst að þið ættuð öll að mæta...;)
miðvikudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|