mánudagur

Einhverra hluta vegna var ég andvaka í nótt, svo ég ákvað að horfa á eins og eina mynd. Ákvað að rómantísk vella með Mandy Moore hlyti að svæfa mig fljótt. Það reyndist ekki rétt. Núna þegar klukkan slær 7 velti ég því fyrir mér hvernig í ósköpunum ég geti farið í skólann eftir tæpa tvo tíma, ekki bara ósofin heldur grátbólgin, rauðeygð og með rennandi hor úr nefinu. Myndin var ekki hálfnuð þegar tárin voru byrjuð að leka, og undir lokin grenjaði ég eins og smábarn, og saug svo upp í nefið eins og fimm ára.

Síðan ég bloggaði síðast hafa nokkrar sérdeilis æðislegar manneskjur átt afmæli. Lilja Dögg varð 19 ára á þriðjudaginn og bauð í heimabakstur, efnileg á því sviði!


Anna Magga, einnig þekkt sem Nannagga, varð svo 31 á föstudaginn

og Gestur Þór varð svo 10 ára í gær. Það kallaði auðvitað á fjölskyldudinner í Flúðaselinu í gær, lamb, frönsk, og ræða. Namm.

(myndirnar eru svo ansi lengi að fara inn, ég ætla að fá mér að borða og reyna að hafa mig í óperudeildina... Klára seinna í dag)

(myndirnar (eins og sjást má) komnar inn...)