mánudagur

Vídeóið fyrir neðan hefur varla virkað lengi eða hvað? Ansans.

Þetta er algjörlega málið. Farið, hlustið, og njótið!

Ég vildi óska að ég væri með draumaráðningabókina hennar mömmu. Þá stóru. Mig dreymdi nefnilega svo skrítinn draum í nótt að ég er alveg lost. Þegar ég flétti upp stikkorðum á draumur.is þá á eitt að tákna endalausa hamingju og annað böl og vesæld. Ég tengi ekki alveg á milli. Já eða ég sé bara svona berdreymin og þurfi ekkert að túlka þetta neitt öðruvísi en það kom fyrir? Ég stórefa það.
(þessi mynd kom fyrst upp þegar ég googlaði súrealískum draum og fjórum lykilorðum á engilsaxnesku. Ég sé enga tengingu.)

Mig langar rosalega mikið í nýja skó. Hef samt ákveðið að geyma það þar til ég fæ vinnu. Þar sem ég fer í atvinnuviðtal á morgun og annað á þriðjudaginn, og veit um eina vinnu í viðbót sem mér stendur til boða, finnst mér líklegt að ég fari í skóleiðangur fljótlega. Nema ég fari í Ikea. Hvernig sem það fer þá hlakka ég til.

Kíkti aðeins í innflutningspartý til Eyþórs í gærkvöldi. Þar var gaman. Ég bjóst ekki við öðru. Eyþór býr í partýpleisi við niðri í bæ og á geðveikar dj-græjur. Eyþór er skemmtilegur og á skemmtilega vini. Stanslaust stuð! Það eina sem var ekki gaman var að fara snemma því ég var að syngja í dag. Og jú, það var heldur ekki gaman að koma heim og átta sig á því að ég lyktaði eins og Kaffibarinn fyrir reikningabann. Ojbarasta!
(þar sem þessir tveir (og ég) koma saman er gaman. Eins og sést.)

Ég alveg hreint elska youtube. Ég elska líka flautuna mína. Þessvegna varð ég glöð þegar ég sá þetta. Ég reyndi sjálf, en það tókst ekki. Mér tókst að flauta lagið, ekkert mál. Mér tókst ekki að gera bítið. Ekki einu sinni án flautunnar. Þessi gaur er fáránlegur. Fáránlega góður.