Þá er allt að komast á fullt. Óperudeildin byrjar á morgun, ég fer austur og smala um helgina, Nobili byrjar að æfa næstu helgi, það er komin dagsetning á nemendatónleikana mína, og í kvöld byrjar ballettinn. Já, ég er að láta gamlan æskudraum rætast og prófa ballett með nokkrum söngskólapíum. Hef líklega aldrei verið stirðari en núna svo ég hef gott af því að liðka mig aðeins upp.
Tvær útlandaferðir komnar á planið. Reyndar ekki komin dagsetning á Danmerkurferð, líklega samt í nóvember. Stelpur þið verðið bara að láta vita hvenær ykkur hentar best, svona upp á skóla... Og svo er það Serbía með Helgu Auði og fleirum í maí. Já, annar draumur að rætast, ég er að fara á eurovision!! Júhú!:)
Ég er að fíla Schubert þessa dagana. Jafnvel þó lögin hans séu flest á þýsku. Ég er líka að fíla Badly Drawn Boy og Billie Holiday. Jane Austin kemst líka á listann, og ég er ekki frá því að ég fíli hljómfræði mun betur en tónfræði... Svo er ég líka að fíla nýja litinn á hárinu á mér.
fimmtudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|