þriðjudagur

Bara svona að gamni

100. Ertu með lag á heilanum? Hvað og hversvegna?
Ég er með tvö. O Isis und Osiris eftir Mozart afþví Aron söng það svo vel í deildinni áðan að ég gleymdi mér alveg, og Samson með Reginu Spektor, líklega afþví ég heyrði það í dag og það minnir mig svo á eitthvað sem ég veit ekki alveg hvað er.

99. Ertu í vinnu?
Ég er að leita mér að vinnu, vonast til að fá svör í þessari viku

98. Miðnafn
Björg í höfuðið á Boggu ömmu

97. Gælunafn?
Dísa, Dísa Bogga, Dísadís, Dísa skvísa, og svo þykir mér alltaf jafn vænt um þegar mamma segir "Dísin björt"

96. Hefurðu logið síðasta sólarhringinn?
Það hefur þá verið svo smávægilegt að ég man ekki eftir því

95. Besta "break-up" lag?
Er til eitthvað besta þannig lag? Er það þá ekki bara það lag sem þú getur ekki hætt að hlusta á þá stundina?

94. Hver er síðasti staðurinn sem þú flaugst til?
Ég flaug niður stiga um daginn ef það telst með... Annars lenti ég í Keflavík fyrir meira en ári síðan

93. Síðasta bíómynd sem þú sást og með hverjum?
Eragon með Maju

92. Hvað gerir þig reiða?
Ég held að það sé helst hrokafylli. Ef fólk er með óþarfa stæla

91. Hvað viltu verða þegar þú verður stór?
Ég stefni á að verða söngkona:)

90. Eftirnafnið þitt er?
Ég er Gestsdóttir

89. Hversu löng leið er í skólann þinn/vinnuna?
Ég er svona 15-20 mínútur að labba í skólann

88. Áttu vin af gagnstæðu kyni sem þú getur talað við?


87. Áttu systkini?
Nokkur þannig

86. Hvar ertu núna?
Í Blönduhlíðinni

85. Hvert ertu að fara í kvöld?
Ætla eiginlega að halda mig heima og fara snemma að sofa svo ég vakni og drífi mig í sund í fyrramálið!

84. Hvað segja sjöundu skilaboðin í símanum þínum?
Nei (Jónas þegar ég sagði að hann yrði lengi austur á John Deer (eða Fendt, sá ekki alveg hvort þetta var)

83. Hver er síðasta manneskjan sem þú sendir skilaboð?
Sigurborg sæta

82. Hvað er þér á vinstri hönd akkúrat núna?
Jakkinn minn, nokkrar bækur og skartgripaskrínið migg

81. Hvar er mamma þín?
Mér finnst líklegt að hún sé í kindastússi eða að byrja á kvöldmjöltunum

80. Hvað gerðirðu í gærkvöldi?
Ég sofnaði óvart upp úr 8, vaknaði um 10 og hlustaði á Schwanengesang og fór svo aftur að sofa.

79. Hver er fimmta manneskjan í "ósvöruð símtöl" á símanum þínum?
Una

78. Nálægasti svarti hlutur er?
Það er álíka langt í jakkann minn, sokkana sem ég er í og svartan stól sem lappirnar á mér liggja á

77. Hversu oft færðu launaseðla?
svona einu sinni í mánuði þegar ég er með fasta vinnu

76. Finnst þér gaman að horfa á fótbolta?


75. Syngurðu í sturtu?
Já, ef ég er viss um að enginn heyri

74. Áttu gæludýr?
Ég á minn hlut í hundunum heima

73. Hver er upphafsíðan á internetinu hjá þér?
Google

72. Hvenær hlustaðirðu síðast á kántrýtónlist?
Hlustaði á Patsy Cline núna fyrir helgi

71. Hvenær hlustaðirðu síðast á klassíska tónlist?
Er að hlusta á Renée Fleming núna

70. Býrðu þar sem þú fæddist?
nei

69. Hvað óttastu?
Álit annara

68. Hvað heyrirðu núna?
Umferðina á Miklubrautinni/Lönguhlíðinni og tónlistina í tölvunni minni

67. Hversu mörg lyf eru í blóðrás þinni núna?
Telst koffín með?

66. Viltu halda núverandi starfi eða ertu að leita að nýju?
Ég er að leita

65. Í hverju ertu?
Gallabuxum og peysu

64. Síðasta manneskja til að kommenta á þig?
Hjalti kommentaði á síðasta póst hér, Iðunn Ása á Myspacið og David sendi mér skilaboð á Facebook.


63. Syngurðu?
Ég reyni að gera dáldið mikið af því:)

62. Metal eða kántrý?
Ég er hrifnari af Kántrý, en annars fer það bara eftir gæðum!

61. Rokk eða rapp?
Rokk og ról, en ég fíla samt suma rapptónlist, alveg eftir því hvernig skapi ég er í

60. Finnst þér ostur góður?


59. Hvern hringdirðu síðast í?
Laufeyju

58. Hver hringdi síðast í þig?
Sigurborg

57. Gengurðu með skartgripi daglega?
Nei yfirleitt ekki. Er samt oftar með sumt en annað

56. Hvað ertu að gera núna?
Svara þessu og hlusta á tónlist

55. Hver er síðasta manneskja sem þú faðmaðir?
Mamma held ég

54. Myndirðu deyja fyrir einhvern?


53. Hvað finnst þér þú hafa lært síðast?
Að fullkominn endir með laglínu sem endar í þríund hljómar ekki eins og fullkominn endir en er það samt. Það er nebbla ekki allt sem sýnist (á hljómar kannski betur við í þessu tilfelli?)

52. Er þér kalt?
Nei, en það er samt einhver hrollur í mér.

51. Hvernig lyktarðu?
Eins og bláberjahárnæringin mín

50. Er eitthvað sem truflar þig núna/ertu að hugsa um eitthvað sérstakt?
Ekkert svona sérstakt, ég er aðeins að pæla hvaða lög ég eigi að taka í undirleik á morgun og aðeins að byrja að pæla í hvað ég ætla að syngja á nemendatónleikum

49. Hvaða dagur er á morgun?
Miðvikudagur

48. Hvað ertu að gera á morgun?
Planið hljóðar upp á sund, skóla, læra heima og Nobilifund.

47. Ef þinn fyrrverandi bæði þig um að reyna aftur, myndirðu gera það?
Það færi bara algjörlega eftir því hver það væri og hverjar aðstæðurnar væru. Þori ekki að segja nei því ég gæti alveg skitið upp á bak ef ég lenti í ákveðnum aðstæðum.

46. Sérðu eftir að hafa sagt einhverjum upp?
Nei ég geri það ekki

45. Hver batt hnútinn á síðasta samband sem þú varst í?
Hann gerði það. En það var eiginlega voðalega fátt annað hægt að gera í þeim aðstæðum sem við vorum í svo það var allt í góðu, ekkert brjálað drama.

44. Horfirðu á íþróttir í sjónvarpinu?


43. Ertu hrifin af einhverjum?
Æi ég er eitthvað svo ráðvilt.

42. Kanntu að synda?


40. Hvert fórstu síðast í frí?
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum?

39. Ertu eða hefurðu verið skráð í herinn?
nei

38. Hversu langt er/var þitt lengsta samband?
sundur og saman (aðalega sundur samt) í 9 mánuði. Það var samt eins og ég segi mest megnis sundur svo í heildina voru það kannski ekki nema 4...

37. Hverju tekurðu fyrst eftir við hitt kynið?
Auðvitað andlitinu, og höndunum.

36. Hefurðu einhvern tímann gefið/verið gefinn trúlofunarhringur?
nei

35. Bandaríkin eða Kanada?
ég hef bara komið til NY

34. Hvað er klukkan?
hálfsjö

33. Hver yrðu viðbrögð þín ef þú kæmist að því að þú værir ættleidd?
Velta því fyrir mér hvernig í andskotanum ég hefði náð í ættarsvipinn hennar mömmu

32. Gallabuxur eða jogging
bara eftir því hvað ég er að gera

31. Hvað ættirðu að vera að gera?
Syngja

30. Ætlarðu að gera það?
Ég hugsa að ég rauli frekar um leið og ég skoða nótur

29. Ertu í sokkum?


28. Áttu stór sólgleraugu?


27. Hefurðu grátið svo mikið að þú varðst veik?
Já ég hef fengið höfuðverk

26. Hefurðu verið í fangelsi?
Nei

25. Hefurðu æft íþróttir?
nei ekki af viti. Var í frjálsum á sumrin, fótbolta, blaki og körfu bara í skólanum í grunnskóla (ágæt í fótbolta og blaki, sökkaði feitt í körfu), hef farið á nokkur dansnámskeið og var reyndar að byrja í ballett!

24. Viltu giftast?
Ekki núna, en hefði ekkert á móti því seinna, svona ef til vill

23. Hefurðu nýlega talað við þinn nýlegasta fyrrverandi?
Nei ekki síðan um áramót!

22. Ættu vinir þínir að deita þína fyrrverandi?
Ég sé ekkert að því í sumum tilfellum, en það væri dáldið skrítið/erfitt í öðrum.

21. Finnast þér allir strákar asnar?
blessunarlega ekki

20. Heldurðu að það sé ástæða fyrir öllu?
ég bara veit það ekki!

19. Uppáhalds sjónvarpsþáttur?
ER

18. Finnast þér eighties myndir skemmtilegar?
Margar þeirra eru alveg yndislega hallærislega skemmtilegar!

17. hvernig finnst þér "POUR SOME SUGAR ON ME" með DEF LEPPARD?
Ég hef held ég aldrei heyrt það.

16. Dansarðu við það?
uhm. nei

15. Hvenær vaknaðirðu í morgun?
á milli 7 og hálf8. snúsaði samt til korter yfir átta, bara í dag...

14. Svafstu ein?


13. Besta borg sem þú hefur farið til?
París var æðisleg. Og New York líka!

12. hefurðu farið til London?
nei ekki enn

11. Geturðu sleikt á þér tærnar?
haha já

10. Uppáhaldsnammi?
Þristar, og svo heimagerðar karamellur...;)

9. Hefurðu verið í framhaldsskóla?
Já, kláraði eitt stykki svoleiðis og er svo að klára framhaldsnám í söng í vor (vonandi)

8. Uppáhalds búð?
HM, Ikea, Kron, Zara og Urban Outfitters

7. uppáhaldstími dagsins?
Ég veit það ekki alveg

6.Hefurðu sleikt kinn á einhverjum öðrum en sjálfri þér?
Haha, já

5. Hefurðu séð allar spiderman myndirnar?
Nei

4. Hver er uppáhaldsárstíðin þín?
Ég þoli ekki svona uppáhaldsspurningar, ég fæ alltaf valkvíða. Vil ekki gera upp á milli hlutanna...

3. Hvers hlakkarðu til?
Nobiliæfingar um helgina:)

2. Hefurðu tínst í myrkri?


1. Hvar er besti vinur þinn núna?
Maja er niðri, og ég reikna með að doktorinn sé annað hvort í skólanum, heima hjá sér eða uppi í Mogga.