Ég er ekki eins dugleg að blogga og Hjalti og Sigrún. En þau eru líka í bloggkeppni. Og þurfa að vera dugleg að láta okkur klakabúa vita hvað fer fram á hinum norðurlöndunum...;)
Ég er hinsvegar dugleg að hanga á facebook og Myspace. Jafnvel þó það sé ekki beint mitt speis. Mér finnst æðislegt hvað við erum að fá jákvæð og góð viðbrögð þrátt fyrir að þetta sé ekki indí eða r0kk, heldur stúlknakór. Kannski klassíkin sé að lifna við?
Talandi um Nobili þá erum við byrjaðar á jólalögunum. Enda tvennir jólatónleikar framundan og sitthvor dagskráin. Það er svo gaman að syngja Britten og Dancing Day aftur, og eins, þó það sé bara októberbyrjun, að æfa "spari"jólalögin. Það er eins gott að byrja snemma og æfa vel fyrst við ætlum að syngja fyrir alla Evrópu... Þessi jólastemning hefur góð áhrif á skipulagninguna mína. Ég er búin að gera jólakortalista og sé ef til vill fram á að ná að senda jólakortin á réttum tíma. Vona ég.
Óperuæfingar á hverjum degi, erum að fara í sviðsetningu núna, og frumsýning 24.okt. Daginn áður verða svo nemendatónleikarnir mínir og það er eins gott að fara að ákveða alveg eitthvað til að syngja þar. Og læra tríóið. Og já, sunnudaginn þar á undan er svo kirkjusöngur. Og Nobiliæfing. Og það er vinnuhelgi.
Já og ég er orðin barþjónn. Byrjaði að vinna á Uppsölum, barnum á Reykjavík centrum, núna á fimmtudag. Og líkar bara vel, hentar mér töluvert betur en símasala...:)
mánudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|