Það er greinilegt að í dag er útborgunarfimmtudagur. Enda kaupstaðarlykt í miðbænum.
Sýningarnar gengu báðar vel, og tónleikarnir bara líka! En það er nú svo langt síðan. Djammið eftir á var líka mjög skemmtilegt, bæði (hér finnst mér asnalegt að nota orðið "bæði" þar sem um þrjú kvöld er að ræða, hugmyndir?) karókíkvöldið og frumsýningar/lokasýningarpartýið, og svo 5.6.7.8's kvöldið. Enda var svo gaman að fá Guðrúnu Ágústu til landsins:)
Nú er alvaran svo aftur tekin við. Í upphafi skólaárs keypti ég mér svona "lærum þýsku" geisladiska, og nú er það nánast það eina sem ég hlusta á. Nei ég er að ljúga. Það er það eina sem ég ætti að vera að hlusta á. Vildi að ég hefði þolinmæði í meira en hálftíma í einu. Ég þarf samt að taka mig á, það þýðir ekkert að verða eins og trjádrumbur þegar á að syngja á þýsku og stífna bara og stífna!
Ég elska að sjá svipinn á þeim útlendingum sem ég plata til að kaupa brennivín. Óborganlegt!
Núna bíður mín eins og einn þáttur af America's next top model og svo beint í háttinn. Adios...
föstudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|