Ég er búin að vera löt. Í það minnsta löt við að blogga. Áttaði mig svo á því að ég gæti víst ekki heimtað blogg frá öðrum án þess að skrifa eitthvað sjálf. Svo hér er ég.
Í hádeginu spurði amma mig hvort það væri ekki "alveg búið að eyðileggja jólin þarna í Reykjavíkinni". Það væri nú alltof snemmt að byrja að skreyta og spila jólalögin og mánuður til jóla. Kaldhæðin hún amma mín, því sjálf stóð hún í bakstri í dag og bauð m.a. upp á piparkökur í kaffinu.
Mikið finnst mér nýja Egilsauglýsingin sæt. "Ást við fyrstu sýn, malt og appelsín!".
Nú kallar mamma í mat. Svo ætla ég að horfa á Barnaby. Það jafnast fátt á við breska sakamálasjónvarpsmynd á föstudagskvöldi.
föstudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|