föstudagur

Tími

Hvað er tími? Akkúrat núna eitthvað sem ég hef ekki.... Vikan í grófum dráttum? ok, byrja á sunnudaginn...:
Vakna algjörlega raddlaus og það er kóræfing um hádegi, til hálffjögur. Upphitun kl.hálffimm og tónleikar kl.5. Svo var kórnum boðið í mat hjá Jónsa, en ég og Sigrún þurftum að fara þaðan rétt fyrir átta og upp í Borgarleikhús. Þar horfðum við á Héra Hérason og fjölskyldu hans, ásamt öðrum úr íslensku 403 og 503. Þegar leikritið var búið fór ég á læknavaktina því magaverkurinn var alveg hryllilega slæmur! Læknirinn þar sendi mig á Landspítalann til öryggis, ef þetta væri nú botnlanginn, og þar eyddi ég nóttinni. Það var ekkert augljóst að mér, ekkert sem þau fundu á staðnum án rannsókna, svo ég var send heim á mánudaginn. Og svaf allan daginn... � þriðjudaginn var svo próf í spænsku...:/ Og La grande féte de Joli Village, dans Café les Corpes saintes! Merci trés bien!! :) Það snjóaði allan daginn, og ég fór og tók bensín. Nema hvað, ljóskan ég rakst í takka á hurðinni á litla Suzukinum mínum og læsti lyklana inni og mig úti! VI� DÆLUNA! Frænka mín var svo góð að koma með varalyklana, en umferðin var verulega hæg, og það tók 40 mínútur...
� miðvikudaginn krufði ég fisk. Og lyktaði eins og ég veit ekki hvað eftir á... Svo var löng æfing með Mezzoforte um kvöldið, allt á fullu fyrir tónleikana...:)
í gær var annað próf, sem ég gat ekki neitt í! Náttúrufræðipróf... Svo var önnur löng æfing, og allt þetta gerði ég á fljótandi maga!:) � dag borðaði ég svo ekkert fyrr en í hádeginu, því ég var í röntgen klukkan 11. Fullt fullt af myndum, og ég er að skrifa eintómt kjaftæði og nenni ekki að þreyta ykkur meira með því!

Ergo: Aukatími er ekki til í minni dagskrá þessa vikuna, ég þjáist af tímaskorti.
Lausn: Ætti að róast aðeins núna eftir helgi, þ.e. ef ég fer ekki að læra þeim mun meira fyrir prófin sem nálgast óðfluga...