miðvikudagur

Stúdent

Ég er (vonandi) orðin stúdent í frönsku! Síðasti FRA503 tíminn var núna áðan. Nú á ég bara eftir að skila örfáum verkefnum fyrir 14.des, og þá búmm! Franska 503 búin og ég þar með orðinn stúdent í frönsku! Engin meiri franska! Það er að segja þangað til í FRA603 og FRA113 núna eftir áramót...:-Þ

Núna er listinn yfir þær greinar sem ég er búin með og þarf aldrei aftur að fara í aðeins að lengjast! skrifa hann seinna, ætla að vera dugleg húsmóðir og elda ofan í ábúendur heimilisins áður en ég fer á kóræfingu...