föstudagur

Já, því miður komst hún Lísa Hauks ekki áfram í ædolinu í kvöld. Hún Lísa Hauks er sko frænka mín, en ég verð nú að viðurkenna að ég þekki hana ekki neitt... En einu sinni fannst mér bróðir hennar sætur, hann Hjalti Már! Hef hvorugt þeirra séð í dáldinn tíma...

� kvöld fattaði ég á hvern saxófónleikarinn í Kaleidoscope minnir mig á. Andskotans. Svona dáldið. Taktarnir og húmorinn... Nei, ekki andskotann sjálfan, en andskotans hvern hann minnir mig á. Saxófóninn (sem ég man ekki nafnið á í augnablikinu) er mjög fyndinn og skemmtilegur, alltaf að grínast e-ð!

Já, Kaleidoscopetónleikarnir eru á morgun. Þetta verk er algjör snilld! Að vísu ósyngjanlegt á kafla, eða það liggur við, þar sem báðir sópranar liggja á Ainu í heila eilífð! Syngjum það mun hraðar en það á að vera, og breyttum textanum úr í í a. Algjör snillld!:)

Bleh... Ég er ekkert viss um að ég eigi að vera að þreyta ykkur með "leirburði" eins og einhver sagði... Vil bara benda viðkomandi á að sjálfur hefur hann ekki alltaf yrkt undir hefðbundnum bragarháttum, og set hér með mjög fallegt ljóð eftir viðkomandi, máli mínu til stuðnings:

Sorg
Sorgin, stór feit kerling
sem ryðst inn á heimili.
Sorgin, svo hræðilega hræðileg.
Sorgin, afhverju er hún til?
Sorgin, við verðum að sætt'okkur við hana.
Sorgin, af hverju er hún til?
Sorgin, tór í kodda.
Sorgin, komum henni fyrir kattarnef.
(Ein af mörgum bókum Grunnskólans á Skógum)


Góða nótt.