föstudagur

Röfl

Já, ég var að horfa á Idolið:) Þar sá ég bæði Lísbeth frænku mína, og hann Daníel. Er svo núna bara að bísnast yfir því að enginn hefur kommentað hjá mér lengi...:( Bloggheimurinn að deyja út? Sísa er hætt, segist líka vera hætt að lesa blogg, Kristrún náttla löngu hætt, Edda bloggar bara þegar hún hefur tíma, sem er ekkert oft... Það eru ekkert mörg blogg eftir sem ég les reglulega... En ég ætla að halda áfram... Svo lengi sem ritstíflan hvelur mig ekki hryllilega... Mig hefur alltaf langað til að verða skáld/rithöfundur og eins og Ragnhildur Richter segir "æfingin skapar meistarann..."
Með útkomu Vængjataka jókst mér aðeins sjálfstaust, og óttinn við að einhverjum finnist ljóðin mín léleg, það þýðir ekki að hugsa þannig ef maður ætlar sér e-ð! Þannig að hér eftir eiga kannski eftir að birtast fleiri af ljóðunum mínum....:þ
Fékk vetrardekkin undir bílinn áðan, það er munur! Hélt að ég flygi útaf þegar ég fór í skólann í morgun...
Annars er ég bara drulluhás og aum heima núna! Sem er ekki gott... Lifi á sólhatti, C-vítamíni og tei... Ætla mér að meika jólakortasölu í Kringlunni á morgun (endilega kíkið við...;) og svo er æfing, tónleikar, matur og leikhús á sunnudaginn... Fyrstu Nobilitónleikarnir sem ég syng á! Og ég kann ekki neitt í lögunum... Kannski er bara betra að vera raddlaus...

Sjitt, ég röfla svo mikið þegar ég veit ekki hvað ég á að skrifa! Betra að hætta þessu og setja inn eins og eitt ljóð, og fara svo að sofa...