þriðjudagur

It's coming on...

"It's coming on christmas, they're cutting down trees, they're putting up reindeer singing songs of joy and peace"

Mér urðu á þau mistök að kveikja á útvarpinu á leið minni niður í skóla í dag. Í sakleysi mínu hélt ég að ennþá væru mánuðir til jóla. Útvarpið og Sarah McLachlan voru greinilega ekki sammála mér. Í dag eru nefnilega mánuður og næstum því tveir til jóla, en ekki lengur tveir. My mistake...

Munið þið samt þegar jólalögin fóru ekki að heyrast fyrr en um miðjan desember og fæstir byrjuðu að skreyta að ráði fyrr en uppúr 20.des?