miðvikudagur

Wilkommen, bien venu, welcome...

Hér til hliðar og örlítið niður er teljari. Nú fer talan á honum að nálgast 10.000 og því væri voða gaman að þið kíktuð aðeins á hann þegar þið komið hér við og látið vita hvar í röðinni þið eruð! Einn heppinn lesandi fær svo glaðning þegar áfanganum er náð.

Annars verður þetta nú ekki mikið langt blogg hjá mér í þetta skiptið frekar en síðasta. Hjá mér er það bara skólinn, vinnan, óperudeildin. Og öðruhvoru næ ég að koma fjórðungnum fyrir, en það er varla mikið meira en einu sinni í viku. Ekki nema við hittumst fyrir algera tilviljun eins og í strætó í gær.

Helgina 25.-26. nóvember frumsýnum við svo "söngleikinn/cabarettinn" okkar. Nánari upplýsingar koma eins fljótt og auðið verður, en það verða allavega þrjár sýningar, ein á laugardegi og tvær á sunnudegi. Skemmtilega hallærislegt og fyndið, og kostar ekki nema 500-1000 krónur!

Ég er samt ekki frá því að ég vilji frekar vera með stór brjóst heldur en sæt og falleg.