mánudagur

Ég veit að þið bíðið spennt eftir bloggi héðan, og loksins loksins kemur eitthvað sem er ekki í skeytastíl. Síðan síðast? Hvenær bloggaði ég síðast af viti? Vá... 5.ágúst og svo 12. júlí? Margt mikið og (mis)skemmtilegt gerst síðan þá. Söngskólinn er til að mynda orðinn mitt annað heimili og ég komin með vinnu. Vinn í Oddfellow húsinu við alls konar veitingaþjónustu 10 kvöld í mánuði og hef það bara næs þar, frí alla laugardaga og sunnudaga og gott tímakaup. Æi í guðanna bænum, ég ætla sko ekki að fara að telja upp allt sem ég hef gert síðan síðasta almennilega bloggfærsla var rituð. En. Þessi helgi var samt alveg sérstök. Í gæðaflokki. Og löng helgi! Í rauninni byrjaði helgin mín á fimmtudagskvöldi með rassahristingi af bestu gerð, eða ljótudansnámskeiði eins og Elín kallaði það... Ég kýs að nota heitið "reaggaeton" eða suðurameríska danstakta. Kúl. Eftir miklar brjóstafettur og rassaköst héldum við Guðrún svo galvaskar og sveittar til fundar við stelpurnar og fimmtudagsbjór.Núna um helgina fékk ég svo gesti, en ólétta systir mín og fylgifiskurinn hennar fengu næturpláss hér um helgina. Á föstudagskvöldið gerðist ég hinsvegar lélegur gestgjafi og stakk af í bíó. Fór með stelpunum á þessa mynd sem var mjög góð! Eftir það var svo haldið í kjallarann til Rakelar þar sem við (aðalega Elín) blönduðum og drukkum (ekki bara aðalega Elín heldur við flestar) Cosmopolitan. Namm... Við stoppuðum nú ekki langt fram eftir nóttu þar sem Guðrún var að fara að vinna daginn eftir, Rakel að fara til Parísar og ég í brúðkaup. Var svo vakin upp af Ásrúnu daginn eftir og fyrrihluti laugardagsins fór í þeyting. Til Gunna bró, inn í Hafnarfjörð í hárgreiðslu, út í Garðakirkju á æfingu, upp í Flúðasel í fataskipti, Elliðaárdalinn í myndatöku og svo beint í kirkjuna til að gifta þau pabba og Huldu! Loksins loksins eftir 20 ára kynni! Athöfnin var yndisleg og stressið sem fylgdi því að syngja hvarf strax eftir fyrsta lag. Ég held að ég hafi komið föðurættinni minni dálítið á óvart, allavega miðað við viðbrögðin hjá þeim...;) Jess!Veislan á eftir var sömuleiðis æðisleg. Æðislegur matur, skemmtilegar ræður, og frábært fólk! Sat til borðs með Hildi og Sverri, Ásdísi og Stefáni, Hörpu og Gunnþóri, og Ásrúnu og Árna og átti í skemmtilegum samræðum við þau megnið af tímanum. Stefán spurði mig hvort ég ætlaði ekki að fara að drífa í þessu (systir mín liggur undir grun um kjaftagang) en mér finnst nú að allavega Harpa og Gunnþór megi alveg vera á undan mér, auk þess sem Gunni og Thelma eru líklegust til að vera næst;) Í lok veislunnar stungum við, afkomendur brúðhjónanna, svo af og skreyttum Flúðaselið með kertum og rósum. Planið hjá mér var svo að skreppa niður í bæ eða gera eitthvað skemmtilegt, en fljótlega eftir að ég kom heim lá ég sofandi í rúminu mínu, ofan á sænginni. Vaknaði svo í morgun, enn í háu hælunum og kjólnum!Dagurinn í dag fór svo í heimsókn í Flúðaselið, fjölskyldumat í íbúðinni sem amma og afi eru í, og svo fórum við Maja á "Brottnámið úr kvennabúrinu" í óperunni. Núna sýnir blogger "could not connect to Blogger.com. Saving and publishing may fail." En ég vona hið besta og ýti samt á publish. Og nú megið þið kommenta.