laugardagur

8 cm plús

Fjórðungurinn minn ( því hann er ekki orðinn hinn helmingurinn minn ennþá) og besta vinkonan eru sammála um léleg gæði tónlistarsmekks míns. Ég lét það hins vegar lítið fara í taugarnar á mér í gærkvöldi, orðin vön kommentum í þann garð, og tók fyrir þau Spice Girls dansinn (Stop right now, thank u very much...).

Ég hef meiri áhyggjur af óvelvild fjórðungsins í garð uppáhalds skónna minna, forláta koparlitaðra stígvéla með pinnahæl. Það er akkúrat hællinn sem orsakar óvelvildina því þegar þessir 8 aukasentimetrar bætast við mína 170 vex ég fjórðungnum upp fyrir höfuð. Það er því í sjálfu sér ágætt að íslensk veðrátta gerir það að verkum að prjál á borð við pinnahæla er ekki alltaf mögulegt, því á milli fjórðungsins og skónna yrði erfitt að velja. Stígvélin verða því enn meira spari en hingað til og ég þarf að leita mér að flatbotna djammskóm.