þriðjudagur

LIFI EFFEMM!!!

Ha!!! Þegar við systurnar vorum að keyra heim úr skólanum áðan hringdum við upp á effemm til að giska á hljóðið. Það er að segja, Lilja hringdi úr símanum mínum því ég var að keyra. Nema hvað, svo náum við inn og erum númer 10 (sem eru akkúrat skilyrði til að vinna). Og taddararambambamm... �giskun mín er rétt!!! Hljóðið er gamall póstkassi!! � minningum mínum er hann gulur, svona skúffukassi úr járni, og lifði lengi við garðshornið heima, eða þangað til mamma keyrði á hann einn góðan veðurdag og við fengum þennan græna plast... En allavega, við systur erum þrjátíuþúsundkjelli ríkari en áður!!!:D:D:D