sunnudagur

Enn á ný...

Já, ég held að bloggið mitt sé aftur orðið sama gamla gelgjubloggið og gamla bloggið var...
Var í æfingabúðum um helgina. Kór Langholtskirkju í Úthlíð í Biskupstungum. Jóhannesarpassían í aðalhlutverki, og svo Der Frühling í aukahlutverki, þýskan í fyrirrúmi... Við gistum í sumarbústöðum, og ég, Kristrún, Sigurborg, Maja og Steinunn vorum saman í Granda. Við komum í bústaðinn eftir æfingu á föstudagskvöldið, ætluðum í pottinn en hann var þá hálfkaldur. Svo við settumst fyrir framan risasjónvarpið sem var þarna. Og nei, haldiði ekki að í vídeóinu hafi verið hin argasta klámmynd! Private reality tv number 8! Við vorum í smástund að átta okkur á hvað væri í gangi áður en við stukkum á videoið og settum My girl í. Alveg hægt að tárast yfir henni!
Eftir langar æfingar á laugardaginn, sem við vorum yfirleitt fashionally late á tóku svo við prævat æfingar á skemmtiatriði sóprana og Villa sem flutti yfir í okkar bústað. Og jú, hann var ekki búinn að vera lengi á staðnum þegar heiti potturinn var orðin alveg mátulega heitur! Svo við skelltum okkur aðeins í hann áður en við fórum svo að búa okkur fyrir árshátíðina... Vorum náttla alveg í stíl við þemað (kóngafólk) og mættum með kórónur og veldissprota! Maturinn var alveg rosalega góður, og altinn byrjaði svo með alveg bráðfyndar landslagslýsingar á Villa, svo misstum við reyndar af megninu af bassaatriðinu vegna æfinga inni á klósetti, tenóra vantaði skemmtiatriði vegna fjarveru formanns F�DE og svo vorum við stelpurnar, og Villi. Við sungum Goodnigth sweetheart og vorum svo með skemmtilegar hreyfinar með, og heppnaðist bara ágætlega!:) Eftir þetta skruppum við stelpurnar aðeins upp í bústað að vökva okkur áður en við fórum á ballið. Þar spiluðu Blek og byttur og treystu á gestasöngvara. Eftir miklar pælingar, og mikinn dans, ákváðum við Kristrún að taka Bye bye love, sem flestir á staðnum þekktu í túlkun Everly bræðra en við hins vegar í túlkun annarra bræðra, þeirra sem kenndir eru við The Boys... Lagið vakti upp ljúfsárar minningar úr öðrum bekk, og Kisulóra Perla prinsessa tók næstum af mér öll völd. Vantaði bara Seppa!:)
Þegar ballið lokaði var nóttin enn ung, og potturinn alveg afskaplega notalegur! Svo fórum við alveg grútsoðin í rúsínur og skoðuðum spólurnar aðeins betur. Komumst að því að þær hétu flestar eitthvað dubious nöfnum. Auk áðurnefndar Private reality video voru á staðnum Ofurkanínan (Superrabbit), ósiðlegt tilboð, vondir strákar, og eitthvað fleira í þeim stíl... Ég man nú samt ekki alveg hvað fór í á endanum, því teppið mitt var bara of hlýtt, og stóllinn of mjúkur...

Annars er ég komin með fiðring í magann, ég hlakka svo til í sumar! Er ekki búin að fá svar með vinnuna en vona ennþá það besta, og svo sat ég áðan með gítarinn minn og þjóðhátíðarlögin flæddu fram! Langar alveg ótrúlega að hitta krakkana núna, tjalda, fara í sund, grilla, syngja, liggja og horfa á sólarlagið og tala. Eða ekki tala. Bara vera í góðum félagsskap og njóta lífsins. Ahhh, mig á eftir að dreyma vel í nótt...