þriðjudagur

hahaha!

Hún systir mín var að setja í þvottavél hérna áðan, og ég sagði henni að setja mýkingarefni með því þetta var þannig þvottur. Svo labba ég framhjá dyrunum og heyri um leið "úbbs, æjæj! Þetta er örugglega ekki mýkingarefni!" Fer inn í þvottahús og þar stendur hún með Ajax gólfhreinsiefni og búin að hella því í hólfið fyrir mýkingarefnið!

Annars fattaði ég í dag hvað ég er ánægð með lífið akkúrat núna! Gengur vel í skólanum, er að ná laginu í Jóhannesarpassíunni, á fullt af góðum vinum út um allt (skólanum, kórnum, fyrir austan, í bænum, o.s.frv.), yndislega fjölskyldu (eða fjölskyldur ef maður lítur þannig á það), er að ná í aukið þol þessa dagana, og svo akkúrat núna er ég meira að segja skotin í strák, sem ég veit að finnst allavega pínu vænt um mig! La vita es bella!:)

Svo sló ég inn valið mitt í dag. Var búin að pæla mikið í því hvernig ég ætti að fara að þessu, hvort ég ætti að bæta félagsfræðibrautinni við, hvort ég ætti að útskrifast um jólin, eða hvort ég ætti bara að taka aukaeiningar í val. Allt hafði þetta sína kosti og galla! Félagsfræðibrautin þýddi landafræði og minni möguleikar á viðbótarvaláföngum af málabraut. Kostirnir voru hins vegar hvað það lítur vel út á stúdentsskýrteini að útskrifast af tveimur brautum... Eftir miklar vangaveltur og samtöl við foreldra, vini og kennara, ákvað ég samt að það væri kannski fullmikið í töflu, með söngskólanum og öllum aukafögum þar...
Næsti möguleiki var að útskrifast um jól og einbeita mér að söngnum eftir áramót. Vissulega sterkur möguleiki, meiri tími í tónheyrn, tónlistarsögu, tónfræði og þess háttar... Gallarnir voru hins vegar sterkir, engir til að dimitera með og enginn dreifbýlisstyrkur eftir áramót! Og það munar nú alveg um 90.000 kjell...
Svo þriðji möguleikinn varð fyrir valinu. Ein braut, fjögur ár og svo söngskólinn með. Svo tek ég bara 12 einingar á síðustu önninni minni (lágmark fyrir styrk), nýti P-ið alveg, tek söngskólann og vinn með...;)

En valið var svona:
ENS 503: Kjarnaáfangi.
FRA 233: Eini frönskuáfanginn sem ég á eftir í skólanum (það er að segja ef kennararnir finna ekki upp á nýjum áfanga...) Edda, Maja, Ugla og kannski Rakel og Elín velja hann líka, svo París, here I come! :D
LEI 103: Leiklist. �msar ástæður, finnst alveg ótrúlega gaman að leika og langar að þroska hæfileikann...;)
L�K 641: Langa gangan. Mæting einu sinni og gengið um fjöll og firnindi, hljómar vel!:)
SAG 203: Kjarnaáfangi.
SPÆ 403: Langar að geta allavega tjáð mig, og efast um að margir myndu skilja 303 spænskuna mína...:)
STÆ 313: Langaði í meiri stærðfræði, renndi yfir þá áfanga sem ég kemst í, og tölfræði og líkindareikningur hljómar vel! Allavega betur en föll og deildun, hornafræði og vektorreikningur...
Samtals 19 einingar. Og ég sem ætlaði að taka rólega önn og svo söngskólann... úff... afhverju get ég ekki valið og hafnað??:-Þ
Varaval:
BÓK 153: Bókmenntir. Veit ekki alveg hvað ég var að hugsa með að velja ekki neina íslensku, hvernig lifi ég af??? Varð að setja þetta í varaval...
FÉL 303: Stjórnmálafræði. Erfitt val á milli þessa, umhverfisfræði og lögfræði, og svo undanþágu um kvennasögu í íslenskum stjórnmálum, en eftir steinn skæri blað vann þessi...
MYN 153: Myndmennt, frumform og fríhendisteikning, teikning, litafræði, fjarvídd og módelteikning. Langar að prófa:)

Verð ég kannski með einhverjum í áföngum á næstu önn?? Þið þarna, sem eruð ekki að útskrifast, Ætlið þið kannski um jólin? Því ef það er svo meirihluti fyrir því þá vantar mig bara lokalífsleikniáfangann, og hlýt að geta bætt honum inn...