Ojæja, þá fór lúkkið. Þetta verður eitthvað bráðabirgða, hver veit nema ég hafi tíma í sumar til að rifja upp html kunnáttuna... Eða ekki.
Í gær talaði ég tungum. Og fékk að launum ómælda aðdáun bargesta og samstarfsmanna, og töluverða aukningu á þjórfé. Franska, enska, íslenska, skandínavíska (get eiginlega ekki sagt að þetta hafi verið danska, en bæði norðmenn og danir fóru sáttir). Og annað eins kvöld hef ég ekki upplifað lengi. Aftur voru það kokteilar hægri og vinstri, við spunnum þá jafnvel upp á staðnum, þétt setið við öll borð, staðið og kjaftað, og fólk farið að setjast í lobbíið með drykki.
Ég neitaði frökkunum samt um að djamma með þeim eftir vinnu. Söng og píanópróf framundan svo það eru bara almenn rólegheit á mér. Reikna með að það verði aðeins minna að gera í kvöld svo ég hef nóturnar með mér, og svo kóræfing á morgun.
Mikið hlakka ég svo til að komast smá heim í sveitina næstu helgi og komast kannski í smá sauðburð.
(Eitt stykki gömul mynd, jafnvel af grunnskólaaldri...)
laugardagur
Three little birds - Bob Marley
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|