Skemmtileg tilviljun í dag, því í gær var ég sko fögur diskódís, kannski ekkert sérstaklega lítil en þó lágvaxnari heldur en flestir djammfélagar mínir. Fékk söngkennslu á Næsta bar þar sem tenórar þöndu raddböndin, og steig svo trylltan dans eða tvo á Kofanum. Hoppaði og skoppaði um gólfin, og ég er ekki frá því að súlan hafi aðeins komið við sögu. Vandræðalegt?
Annars blandaði ég hanastél til hægri og vinstri alla helgina. Blóðugar Maríur í tugatali, blue lagoon, jarðaberja daiquiri, cosmo, sex on the beach, nefndu það bara, ég blandaði það. Enda er ég með töluverðar harðsperrur í dag. Bingóvöðvarnir þú skilur. Og tryllti dansinn.
Þegar ég flutti fyrst til pabba í Breiðholtið, 16 ára saklaus sveitastelpa, eyddi ég flestum kvöldum heima fyrir framan sjónvarpið eða með góða bók í hendi. Á tímabili held ég að pabbi og Hulda hafi haft áhyggjur um að ég ætti enga vini, væri félagsfælin eða eitthvað álíka. Raunverulega ástæðan var hins vegar að ég var ekki viss um að rata heim. Þessi ótti minn átti við rök að styðjast. Ég tel t.a.m. afar ólíklegt að ég gleymi svipnum á deitinu mínu sem ætlaði að vera voða herramaður og skutla mér heim úr bíó þegar ég sagði í fullri alvöru, "ég held að þú farir í þessa átt. Svo er húsið gult...". Nota bene þá er örugglega ekki mikið meira en kílómeter úr mjóddinni og í Flúðaselið, og að mestu leiti bein leið.
Á síðustu 6 árum hef ég aðeins skánað. Ég þekki til að mynda 4 leiðir úr skólanum og heim. Sum hverfi eru þó erfiðari en önnur. Þannig verð ég alltaf fáránlega áttavillt í vesturbænum, og Hafnarfjörður er eins og önnur pláneta. Þessvegna varð ég afar hissa þegar ég rambaði á Gamla Lækjarskóla í fyrstu tilraun í dag! Var ekki eins ánægð með sjálfa mig þegar ég keyrði hring eftir hring eftir hring til að komast aftur í borg óttans að fundi loknum... Án gríns tekst mér ekki að fara inn í Hafnarfjörð á einum stað (t.d. eftir Hafnarfjarðarvegi) og út á öðrum (Reykjanesbrautin).
Mikið held ég að sumarið verði gott.
sunnudagur
Fagra litla diskódís...
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|