Og ég hélt að Garðar þessi elska ætlaði aldrei að hætta að tala. Hljóp út í bíl um leið og hann sagði skólanum slitið og rétt náði byrjuninni á This is my life á rás2. Og þrátt fyrir að sjá ekki atriðið hjá mér fylltist litla hjartað mitt þjóðarstolti og bjartsýnin flæddi yfir mig. Hef ótrúlega góða tilfinningu fyrir kvöldinu.
Ég sá ekki sjóvið hennar Charlotte Perelli en er svona næstum viss um að sænska plastgrýlan komist áfram, því miður. Það yrðu svona álíka undur ef hún sæti eftir eins og þegar Selma sat eftir um árið. En hún gerði það og ég vona innilega að hún Charlotte sitji eftir með sárt ennið í þetta skiptið.
Tyrkirnir hljómuðu ágætlega, sá eins og áður ekki atriðið, flott lag en dáldið auðgleymanlegt.
Missti af byrjuninni á Shady Lady því ég parkeraði og hljóp inn í hús. Náði rétt svo lokunum.
Það besta við Litáenska lagið var þegar það kláraðist. Ekkert meira um það að segja.
Albanska stelpan stóð sig ágætlega, söng vel en eins og með tyrkneska lagið fannst mér það auðgleymanlegt.
Svissneski strákurinn var með ekta eurovisionlag, fyrir svona 10 árum. Samt svona skemmtileg nostalgía fyrir eurovisionnörda eins og mig, og ekki skemmdi fyrir að hann er sá fyrsti í kvöld sem gæti nálgast það að vera kallaður augnakonfekt.
Tékkland, ó mæ god. Ég fór á klósettið. Grey gellan reyndi að fela falska tóna með löngum leggjum en áttaði sig ekki á að pilsið var of stutt.
Skildi ekki mikið af hvíta rússneska textanum og lagið stóð ekki eitt.
Lettnesku sjóræningjarnir með íslensku laglínuna eftir sænsku lagahöfundana. Þvílíkt mess.
Króatíska lagið var skemmtilegt. Vona að það komist áfram, jafnvel þó rímið "afríka papríka" hafi ekki verið með í för í ár.
Ég er að fíla búlgarska lagið. Vona innilega að það komist áfram, en það er alltaf riskí að vera með svona langan "sönglausan" byrjunarkafla. Vona að sjóvið nægi þeim, hér heima erum við mjög hrifin af þessu!!
Það er eitthvað svo yndislegt við að hlusta á dani syngja á ensku. Bættu við það sixpensara og axlaböndum og ég held að við séum komin með hjartaknúsara. Jafnvel þó lagið sé ekki flókin eða metnaðarfull lagasmíð.
Byrjunin á georgíska laginu hljómaði dáldið eins og lag á "I am", diskinum sem Selma gaf út í eurovisionfrægðarsól sinni. "I walk with angels". Dramatísk fataskipti á sviðinu bættu við boðskapinn og aldrei að vita nema evrópa telji sig hafa þörf fyrir frið í kvöld.
Var ég búin að nota orðið gamaldags áður? Það á líka við ungverska atriðið í kvöld. Hugljúft og rómó á við Hægt og hljótt. Ekkert að því svosem en lagið ekki minn tebolli. Ekki eins og lagið í fyrra, sem ég eeelska...
VODKA, komið með staup...:) Takturinn er grípandi og hún er kraftmikil stelpan. Aldrei að vita nema hún komist áfram, og dansararnir eiga örugglega sinn þátt í því...;)
Ég fíla grísku áhrifin í byrjuninni. En svo ekki meir. keppnin í ár stefnir á að verða óvenjuléleg.
Ég hef undantekningarlaust elskað makedónísku lögin undanfarin ár. Kraftmikil og falleg lög sem halda áfram í spilun í tölvunni minni löngu eftir að keppnin er búin. Og mér finnst lagið í ár ágætt, dáldil eftirlíking af síðustu árum, en söngkonan er bara ekki nógu góð. Vildi endilega heyra Elenu syngja þetta (ninananja).
Þegar ég heyrði serbneska lagið í fyrra gerðist eitthvað. Það var svo fallegt, svo einlægt, svo satt. Portúgal reyndi að róa á sömu mið í ár, en án árangurs. Allavega fyrir mig. Það vantar einlægnina. Svo benti Trausti bró mér á laglínuna sem er fengin úr láni frá Anastasíu (teiknimyndinni) núna rétt í þessu...
Mín spá er Ísland (áfram ísland, áfram ísland), Svíþjóð, Króatía, Búlgaría, Danmörk, Malta, svo kannski Sviss, Úkraína, Albanía og annað hvort Georgía eða Tyrkland. Svo veit maður aldrei, fyrst að pólska lagið komst áfram á þriðjudaginn er standardinn ekki hár...
Hvernig sem fer hljóta sigurvegarar kvöldsins að vera Sigmar þulur með sín gullnu komment og hárbeitta kaldhæðni, og Lys Asilis sem hélt að Búlgaría væri höfuðborg Serbíu...
fimmtudagur
Júhú júróvisjon!!!
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|