Ég býst við því að núna þegar skólarnir byrja sé sumarið að líða undir lok. Þetta sumar var öðruvísi en önnur sumur. Ekki endilega betra, ekki endilega verra. Öðruvísi. Ég kynntist fullt af fólki og prófaði nýja hluti. Sumarið var gott og ég hlakka til haustins.
Ég sit hér inni í stofu heima í Dalnum og horfi á Maddit. Bækurnar um Maddit og Betu voru í miklu uppáhaldi hjá mér á sínum tíma, eins og reyndar flestar bækur eftir Astrid Lindgren. Myndirnar voru aldrei eins. Maddit lofar reyndar góðu, hana hef ég aldrei séð áður, en Ronja ræningjadóttir var ekki góð. Það vantaði allt ímyndunarafl. Og af því hafði ég nóg.
Ég fór með mömmu, miðjunni og litlu krökkunum í skólatöskuleiðangur í vikunni. Ingólfur fékk þessa fínu Spiderman tösku á hjólum, og hundapennaveski.
Ég man vel eftir minni fyrstu skólatösku. Það var fjólublá og svört kassataska með endurskinsmerki. Hún var alveg rosalega flott. Ég fékk líka rautt pennaveski með fullt af litum í. Ég eyðilagði pennaveskið með því að prófa að klippa á rennilásinn. Skólataskan rifnaði nokkrum árum síðar í átökum á milli mín og Gissurs. Ég veit ekki hvort var sárara, að taskan slitnaði eða að Gissur væri að stríða mér, en þann daginn kom ég grátandi heim. Ef þú slysast hér inn Gissur Kolbeinsson, þá veistu að þetta er allt geymt en ekki gleymt...;)
föstudagur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|