þriðjudagur

Þá er þjóðhátíð 2007 liðin. Mætti út í eyju rétt fyrir miðnætti á föstudag (missti af Ragga Bjarna en náði brennunni) og hélt af stað með Herjólfi rétt fyrir hádegi í gær. Hélt mér vakandi í 26 tíma á föstudag/laugardag (frá 6-8), reyndar ekki nema 21 tíma á laugardag/sunnudag (11-8), en bætti upp fyrir það með sunnudeginum/mánudeginum þegar ég vaknaði rétt um hádegi og fór svo ekkert að sofa fyrr en um fimmleitið á mánudeginum (rétt tæpir 30 tímar). Þá svaf ég líka til hálfátta og var í rauninni bara heppin að vakna í vinnuna í morgun. Samkvæmt símanum mínum hringdi Marta líka og ég ku hafa svarað, en ég man ekkert eftir því...

Ég held samt að ég láti myndirnar tala um leið og þær komast inn á netið (sem verður einhvern tímann á eftir reikna ég með).