þriðjudagur

Þessa morgnana geri ég mitt besta til að rífa augnlokin upp á eðlilegum tíma, reyni að sannfæra sjálfa mig um að það sé betri hugmynd að teygja mig í fötin frekar en að teygja mig í snoozetakkann. Eins og ég var dugleg í sumar er ég gjörsamlega búin að rugla líkamsklukkuna núna.

Snoozetakkinn vinnur yfirleitt fyrstu lotu en bardaganum líkur þó með sigri skynseminnar.

Eftir að bardaganum líkur held ég svo niður í Snorrabúð og sest og hlusta á masterclass. Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur lært mikið bara með því að hlusta á aðra syngja og feedbackið frá kennaranum. Ég er komin með svo mikinn fiðring fyrir skólaárinu, það er svo gaman að hitta alla aftur, fara á tónleika, syngja á tónleikum...

Skólasetningin er á morgun. Á fimmtudaginn kemur það svo í ljós hvað sveitarfélagið segir, hvort ég fæ að halda lögheimilinu fyrir austan eða hvort ég verð að flytja það til að læra það sem ég vil starfa við. Krossleggið fingur fyrir mig.

ójá, ég er aftur komin með skype. Eða komin með skype í nýju tölvuna. Nú þarf ég bara að reyna að muna notendanafn og lykilorð og þá er ég góð.

e.s. Ég tók aðeins til í tenglum, henti út þeim sem ekki hafa bloggað í ár, og bætti inn nokkrum nýjum tenglum. Ef þig vantar, eða ef þú vilt ekki vera á listanum, láttu mig vita...:)