sunnudagur

úff...

Mér er alveg sama um valentínusardaginn, hann er bara útlensk hefð til að lífga upp á veturinn. En bóndadagurinn og konudagurinn eru íslenskar hefðir! Og hún Dísa (já ég) fékk rós á konudaginn!!! :-D

Já, alveg ótrúlega margt búið að gerast síðan síðast! Og það fer ekkert allt hér inn, og hefði ekki heldur gert það þó ættingjar hefðu ekki rambað inn á síðuna...;)
�rshátíðin var alveg ágæt! En jafnaðist samt ekki á við fyrirpartýið! Matseðillinn var á þessa leið: Sjávarréttasúpa í forrétt (mmm, hún var góð!), lambalæri à la Dísa, með mjög góðu salati, sósu, brúnuðum kartöflum og rauðvíni í aðalrétt, og súkkulaðimousse og sítrónufrómas í eftirrétt! Svo voru borðin færð og karlmönnunum hleypt inn á staðinn, og það rættist úr því þó þeir hafi verið mjög fáir til að byrja með! Og partý með tilheyrandi leikjum og spjalli og trúnó... Sérstaklega gaman að Þórunni, og svo að fá Emmu, Ara og Sebba! Og jú, þrátt fyrir áhyggjur á tímabili var líka dáldið gaman að Lilju, þrátt fyrir að sumir (lesist Sísa og Hjalti) hafi látið henni í té alltof miklar upplýsingar! Svo um miðnætti var haldið á árshátíðina sem var eins og ég sagði, alveg ágæt, en toppaði ekki partýið... Of fáir Eyfellingar, við vorum alveg ég, Lilja, Emma, Sebbi, Ari, Rúnar, Gummi og Lóa í partýinu!)
Svo svaf ég lengi á föstudaginn og fór austur, beint í fjósið;)
Það var hins vegar ekki fjósið á föstudagskvöldið, heldur þorrablót á Heimalandi! Ég beilaði nú á matnum og fór bara beint á ballið, skilst að ég hafi misst af ýmsu...;) Hitti Öllu, Brynju, Goggu, Sigga, Einar, Ella (allan bekkinn, nema Sindra og Gissur...) og bara næstum alla! Og ýmislegt skemmtilegt gerðist, og í heildina var kvöldið alveg ótrúlega gott! Var að vísu orðin alveg fáránlega þreitt í endann, og týndi sumum og var þessvegna dáldið þreitt og pirruð, og var aðeins of leiðinleg við einn, sem ég ætlaði ekki að vera svona leiðinlega vond við, þið þekkið mig og vitið að það er ekki í eðli mínu að vera leiðinleg og sérstaklega ekki vond við neinn! (þegiðu Sölvi og ekki fara að koma með neinar típuskýringar hér...) Þannig að ég er með pínu móral yfir því, en það var ekkert illa meint, heldur af ofangreindum ástæðum (þreita, pirringur og týnt fólk...)
En ég fékk blóm!!!:-D