laugardagur

Föndur

Jibbí, ég er að föndra heima hjá Hjalta:D það eru að koma jól!!! Það er allt alveg geðveikt jólalegt hérna, músastigar í loftinu og seríur í öllum gluggum, og Hjalti er búinn að baka smákökur og gera konfekt sem ég og Marta og Hjalti erum að borða og drekka jólaöl... og ég er búin að gera þrjá stiga og fleiri á leiðinni um leið og ég er búin að setja hlekkinn á Mörtu og pósta þessu svo hann komi inn... Það eru að koma jól!!!:D