mánudagur

Nenni ekki...

Það var gaman fyrir norðan. Hitti alla, sá Adda litla, Munda, og Helgu Björg, og náttla yndislegu systkinin mín:)drakk bjór með fjölskyldunni, og smakkaði Amarilo, eða e-ð álíka, sem ég gat ekki drukkið nema örlítið af. Þetta er nebbla rjómalíkjör, ógeðslega þykkur og ég gat ekki hugsað um annað en hvað þetta væri ógeðslegt, þetta væri svo feitt, og þetta væri bara eins og að drekka rjóma...:-S
Var samt gaman, fór meira að segja á hestbak og alles:) Hins vegar bilaði svo bíllinn hjá mömmu og pabba, svo við Lilja fórum með rútu í gær...fjórir tímar! úff... Skarphéðinn bjargaði okkur hins vegar frá bifröst og við horfðum á áramótaskaup síðan 2002 í tölvunni hans...

Hitti svo Steina þegar ég kom heim í gær, hann og Kolli og Jóa komu að ná í mig, og við enduðum svo heima hjá Steina að horfa á Futurama með bróður hans, kærustunni hans, og Herdísi litlu systur þeirra. Sem er reyndar stærri en ég... Svo fylgdumst við með henni byrja að baka, en þegar hún tók upp stóra beitta hnífinn ákváðum við að forða okkur og Steini skutlaði mér heim.

...að skrifa íslenskuritgerð
...að mæta í flaututíma
...að halda mér vakandi
...að blogga meira núna...