miðvikudagur

Já, þá er farið að styttast dáldið í jólin... Allavega lítur Kringlan svo á. Þar er byrjað að "jólaskreyta" eins og systir mín orðaði það. Og í útvarpinu heyrði ég Oh come all ye faithful, eða Frá ljósanna hásal. Sem er mjög jólalegt lag. Það er samt að mínu mati dáldið mikið of snemmt að skreyta allt svona, og hvað þá að spila frá ljósanna hásal!
Fór á djammið um helgina:) Fór til Svanhildar, og þaðan fórum við, Gogga og Una út á Rauðalæk. Aldrei hefði mér dottið í hug að ég ætti eftir að fara í partý á Rauðalæk! Fyrir þá sem ekki vita er Rauðilækur "þorp" vestan við Hellu, þorp sem samanstendur af einni götu (Lækjargötu), þvottahúsi, verkstæði, og hraðahindrun! Já, það er hraðahindrun, og sú í svona "Hvolsvallarstyle" (afskaplega háar og brattar hraðahindranir sem virðast birtast allt í einu...) Allavega. Partýið var heima hjá honum Eyva hennar Öllu. Það var nú ekkert mikið partý fyrr en við stelpurnar mættum, einn sofandi í sófanum, og hinir tveir gestirnir að horfa á sjónvarpið.... Svo komu þeir Hjaltistedar, Einar og Sævald. Þá fór að færast fjör í partýið og við fórum að spila! Og svo fórum við á Kanslarann. Þar var fullt fullt af fullum gömlum köllum að káfa á sér yngri stelpum=okkur... En hann Siggi Hjaltested tók málin í sínar hendur og bjargaði okkur öllum:) Það var nú samt ágætt, þó að bíllinn minn beri greinileg merki notkunnar á stelpukvöldi, fullur af Bacardi flöskum og Lite bjór dósum...