miðvikudagur

Grautarlummur

Djöfull er ég sátt við söguverkefnið! Fyrir þá sem ekki vita þá fékk ég 9,7+ fyrir fyrsta skilaverkefnið...;)

Fór í Idolpartý hjá Bryndísi á föstudaginn. Guð hvað ég var fegin að ég sást ekki syngja... Við Kristrún birtumst bara rétt svo í svip, vona það besta fyrir næsta þátt líka...;) Eftir Idolið fórum við á bjórkvöld á Klúbbnum á Höfða. Kvöldið var ansi skrautlegt og skemmtilegt bara! Dansaði einhvern slatta, aðalega við Bryndísi, Sísu, Kristrúnu og Aron, lenti á trúnó með fullt fullt af fólki, og fór heim á milli 2 og 3...:)

Fór svo í Dominóspartý á laugardaginn, aftur með Sísu, Brynku, Gumma, Kristrúnu, Rúnari, Hjalta, og svo tók ég hann Steina með til að sýna lýðnum...;) Byrjuðum í blindraheimilinu, að hlusta á Hönnu Pakarinen og Óskalögin 7, fórum svo í hinn mjög svo alltaf skemmtilega "ég hef aldrei..." þar sem ýmsu var uppljóstrað... sumt hafði breyst frá því í sumarbústaðaferðinni margfrægu, annað ekki...

� Gaukinn var haldið með tveimur leigubílum. Þegar þangað var komið átti ekki að hleypa mér inn, því ég var ekki með skilríki! Og það virkaði ekki að sýna dyraverðinum bíllyklana... Þegar ég var að búa mig undir að fara til baka til hjalta fór Kristrún að rífast, og ég komst inn gegn því að allir aðrir sýndu skilríki. Takk Kristrún:*
Inni á Gauknum var mikið stuð. Fylgdist með Hjalta og Steina í billjard, og eiginlega hélt ég sko með Hjalta... Fór svo í billjard við Sigrúnu, og við vorum víst ekkert sérstaklega góðar... Allavega fannst sumum við vera lengi... En ég hitti svörtu! Reyndar ekki á réttum tíma...
Talaði heilmikið við hann Gauja, meinta hjásvæfu Mörtu... Hann fékk númerið hennar...;)

Já, þegar af Gauknum var komið héldum við Steini upp Laugarveginn og í Stórholt til Valla vinar hans, en þar var líka partý! Það var nú líka bara nokkuð gaman, ég fékk í nefið og alles:)

� mánudaginn tók ég Kristrúnu með á kóræfingu! Núna er hún orðin meðlimur í Kór Langholtskirkju;) Svo í gær fórum við í bíó, ég, Sísa, Brynka og Kristrún. Nema hvað, Bryndís og Kristrún tóku strákana sína með, svo Sigrún kippti Þóri með, og ég fékk ekkert að vita fyrr en ég mætti á staðinn! En svosem, við fórum á Princess Diaries og Steini er veikur...

Ætla að drífa mig í Joli Village:)