fimmtudagur

Óvenjulega venjuleg

Fór í bíó í gær. Skruppum saman í Smárabíó, Sísa, Marta, Bryndís, Lóa, Kristrún og ég. Fórum að sjá næstum því nöfnu mína hana Dís. Kom mér reyndar á óvart hvað mér fannst myndin góð! Loksins mynd um venjulegt fólk, ekki ofurhetjur eða klappstýrur eða andlega vanheilt fólk... Fann allavega mikla samsvörun með Dís! Sér í lagi með strákamálin... Það er bara of flókið að eiga kærasta, heilinn á mér höndlar það ekki!:) Fékk líka e-ð olbogaskot frá Sigrúnu nánast í byrjun myndarinnar, e-ð vegna sumarsins sem ég ekki skil...:Þ
Mæli allavega með Dís fyrir þá sem vilja sjá venjulegt fólk...:)