miðvikudagur

Jafningur

Fékk líka mjög skemmtilegt símtal á laugardagskvöldið. Frá Krít. Una mín að segja hvað væri gaman hjá sér, hún væri búin að djamma fjögur kvöld af sex! Og það væri bara geðveikt gaman! Og að segja mér að hún elskaði mig, og það yrði sko reunion á Akureyri næsta sumar! Una var orðin dáldið full þegar hún hringdi í mig...;) En það skal nú samt verða reuninon á Akureyri næsta sumar!:)

Keypti mér gítar í gær. Og 1000 bita púsl. Labbaði svo um smáralind með risakassa og gítar undir hendinni. Alla leið frá ótrúlegu búðinni og að bílnum mínum. Fór heim, tók upp gítarinn og spilaði, og sauð slátur. Og gerði líka jafning.

Jafningur
fimmtíu grömm smjör
tvær matskeiðar hveiti
mjólk eftir þörfum
tvær teskeiðar salt
sykur eftir smekk
Smjör og hveiti hrært saman í bollu í potti.
Mjólk helt saman við og sykur og salt einnig.
Hrært vel og stöðugt svo ekki myndist kekkir.