1.
hlakkar þú til jólanna ?
já, megamikið!
2.
ertu stressuð/stressaður yfir einhverju í sambandi við jólin, ef svo er þá hverju ?
ekkert sjúklega, það reddast alltaf allt þó ég sé stundum dáldið á síðustu stundu...:)
3.
ertu jólabarn ?
já:)
4.
hvar verðuru um jólin ?
heima í Drangshlíðardal
5.
hverjum gefuru jólagjafir ?
fjölskyldunni og svo nokkrum útvöldum vinum
6.
hvað finnst þér best að fá í jólamatinn ?
Hamborgarhrygg ala mamma. Svo er hangikjötið hjá ömmu á jóladag líka nauðsynlegt
7.
færðu það sem þú vilt ?
það skiptir bara engu máli
8.
hvað er planið yfir þorláksmessu hjá þér ?
Klára að taka til, smakka jólahangikjötið, skreyta og baka, og svo fer jólatréð upp í stofu um kvöldið og við skreytum um leið og við hlustum á kveðjurnar í útvarpinu:)
9.
hvað er planið yfir aðfangadag hjá þér ?
Borða mandarínur í morgunmat fyrir framan barnatímann í sjónvarpinu, skreyta greni og fara með út í kirkjugarð, setja pakka undir jólatré og gera krakkana og sjálfa mig tilbúna, og hlusta svo á klukkurnar hringja jólin inn klukkan 6:)
10.
hvenær ferð þú í jólafrí ?
Á miðvikudag klukkan 13:15
11.
hvenær er það búið ?
5.jan
12.
ferðu til útlanda eða útá land í fríinu ?
Ég fer heim í sveitina
13.
ertu búin/n að kaupa jólafötin ?
Ég ætla ekki að kaupa jólakjól í ár, á svo marga fallega kjóla
14.
gefuru vinum þínum jólagjafir ?
já, sumum
15.
hittiru vini þína í fríinu ?
Ég vona að ég hitti Öllu eitthvað, og líklega fýrana, en aðra reikna ég ekki með að hitta nema fyrir jól og svo eftir áramót
16.
hvað finnst þér skemmtilegt við jólin ?
samveran við fjölskylduna og afslöppunin
17.
bakaru piparkökur eða laufabrauð fyrir jólin ?
Ekki endilega, piparkökur sum árin og ég bakaði laufabrauð í fyrsta sinn á ævinni í ár! Það eru hins vegar engin jól án þess að fá mömmukökur, ólakökur og flatbrauðið hennar ömmu!
18.
gefuru keypt jólakort eða geriru sjálf/ur eða bara alls engin ?
Ég sit og föndra
19.
hvað gefuru margar jólagjafir?
held þær séu í kringum 20
20.
hvað helduru að verði öðruvísi við jólin í ár vegna kreppunnar ?
held þau verði bara voðalega svipuð og jól síðustu ára..
21.
hverjir verða með þér um jólin ?
mamma, pabbi, Lilja Dögg, Árný Rún, Ingólfur Freyr, Jóna Guðlaug, og svo amma og afi í göngufæri:)
Og nú get ég haldið áfram að lesa fyrir óperusöguprófið sem er í fyrramálið...
mánudagur
Próflestur
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|