laugardagur

(í víngarðinum)

Þegar ég horfi á fréttirnar þessa dagana verð ég svo döpur. Sá brot úr þætti á einhverri útlenskri stöð, líklega BBC, þar sem krakkar á aldur við mig lýstu lífi þeirra síðan átökin í Líbanon brutust út og báðu heiminn um að enda þau sem fyrst, og ég bað með þeim. Það er enginn tilgangur með þessu stríði frekar en nokkru áður og flest fórnarlömb eru saklausir borgarar, börn. Lærði heimurinn ekkert á heimstyrjöldunum tveimur?
Þegar Ísraelar sprengdu upp bæ í Líbanon nú um daginn varð ég að fletta upp þessu ljóði eftir Kristján frá Djúpalæk. Tilgangur árásinnar var örugglega ekki að drepa fleiri en 50 saklausa borgara, þar af 40 börn. Ég held því fram að það hafi meira að segja enginn tilgangur verið með henni.

Slysaskot í Palestínu (Í Víngarðinum)

Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.

Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.

Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.

Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.