miðvikudagur

Á lífi?

Ég datt út úr bloggheimum. Alveg. En er komin aftur, alla vega í þetta skiptið.

Ég er enn að vinna á Eddunni, og stefni á að vinna þar fram að 18. ágúst, því þann 19. fer ég svo til Danmerkur með fjölskyldunni. Það verður gaman, búið að panta miða í disneyland og allskonar:) Þangað til er það samt bara vinnan og eitthvað þannig. Ætla mér í eina til tvær útilegur, en verð bara að sjá til hvað tími gefst til...

Ég fékk það allt í einu á tilfinninguna um daginn að allir væru að fara eitthvert. Eitthvert til útlanda, til langtímadvalar. Og það er rétt! Joke og J0nathan eru farin, Nikkita fór í dag, Elín og Þóra ætla í haust, Maja er að pæla eftir áramót, Ólöf ætlar aftur til Brasilíu í janúar, og þetta er allt svona! Svo að ég dreif mig á þessa síðu, skellti inn umsókn, og er mjög líklega á leiðinni eitthvert sjálf! Er búin að fá jákvæð viðbrögð frá 2 fjölskyldum á Spáni, 2 í Frakklandi og 2 á Englandi, þar af á önnur hús í frönsku ölpunum... Ætla að skoða þetta betur, en ég er eiginlega alveg ákveðin í að eitthvert út fyrir landsteinana fer ég...

Á morgun er það samt bara Reykjavík city, fyrst að hjálpa Gunnu Þórey og co að flytja, og svo í myndatöku á fimmtudagsmorguninn áður en ég bruna aftur upp á Eddu að vinna.

Breytti nokkrum úreltum tenglum og bætti inn. Sjáumst:)