föstudagur

Ástfangin

Í gær keyrði ég systur mína til Reykjavíkur í fermingu. Í leiðinni tókst mér að verða ástfangin.

Þetta var ekki langt stopp, við komum í bæinn um fjögur leitið og fórum fyrir 7! Ég ætlaði bara að skreppa í búð fyrir afa og fá einhvern með mér að kaupa ís í góða veðrinu! En ýmislegt fer öðruvísi en maður ætlar, og ég komst ekkert lengra en í Kringluna. Ég sá hann ekki alveg strax, sá við hliðina á honum greip alla mína athygli, en þegar ég fór að skoða betur gat ég ekki alveg ákveðið mig. Svo að ég kippti þeim báðum inn í mátunarklefa, og annar þeirra passaði eins og flís við rass! Vá hvað hann var fallegur!

Ég keypti hann samt ekki í gær, var ekki með pening á mér. En ég held að útskriftarkjóllinn sé fundinn... Allavega ef hann verður þarna ennþá á miðvikudaginn!

Annars líður tíminn hér fyrir austan ótrúlega hratt. Ég reyni að lesa frönsku og ensku áður en ég fer að sofa, og svo að æfa mig... Búin að sigta valið niður í tvö lög, og svo er það bara spurningin hvoru ég næ betur...

Allavega. Næstu dagar munu líklega einkennast af Sex and the city, Les Rinocheros, páskaeggjaáti og (ljúfum) tónum. Svo er það ein vika af skóla, próf og ef allt gengur eftir útskrift í lok maí. Og svo er það bara New York New york beibí:)