... er liðinn undir lok! Vonandi... Og já ég veit hvað þið eruð að hugsa og það er rétt; ég felldi tár. Ástæðurnar? Svona var dagurinn hjá mér og ástæður fyrir ertingu tárakirla.
Síðasti frönskutíminn; ég tók frönsku allar mínar annir og útskrifast með 27 einingar. Enska; tók mér árs pásu frá allri ensku en kom endurnærð til baka og útskrifast með 28 einingar. Stærðfræði; Ég var eiginlega bara of ánægð að vera að klára þennan áfanga til að gráta...
Svo fór dagurinn í dimissionundirbúning og þannig. Sat við saumavél í fjóra tíma og árangurinn er ógeðslegur! Rétt eins og hann átti að vera, ógeðslegur en samt geðveikt flottur á sinn hátt!
Jæja, morgunmatur klukkan hálfátta, (ég er að spá í að mæta í náttfötunum í skólann) og svo er þétt dagskrá langt fram á laugardag...;)
föstudagur
Síðasti dagurinn í MH...
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)

|