föstudagur

Tímamót

Síðustu dagar hafa einkennst af tímamótum. Allar systur mínar (ég á 4 svona fyrir þá sem ekki vissu það) útskrifuðust, Ásrún Ýr frá Hvanneyri, Lilja Dögg frá MH, Árný Rún úr grunnskóla og Jóna Guðlaug úr leikskólanum. Lilja fékk tvenn verðlaun, fyrir stærðfræði og efnafræði, og Árný Rún sá til þess að dönskuverðlaunin héldust í fjölskyldunni (Lilja og jeg). Pressa á þau yngstu eða hvað?
Auk þessa útskrifaðist Alla líka sem skógtæknir síðustu helgi, pabbi kláraði BS ritgerðina og útskrifast í sumar, og Sindri fer að úskrifast úr verkfræðinni.

Mín tímamót urðu á miðvikudaginn þegar ég skrifaði undir minn fyrsta samning sem listamaður. Eitthvað sem mig hefur dreymt um, líklega frá því ég var pínulítil og ætlaði að verða annað hvort (ballett)dansmamma eða rithöfundur. Eitt stórt skref í góðu áttina!

Tónleikarnir með Lady and Bird og sinfó gengu svo mjög vel og okkur og öllu hrósað í hástert. Bíð spennt eftir að sjá gagnrýni, þangað til ætla ég að hlusta á útvarpsupptökuna...