mánudagur

Ég eignaðist enn eina litla frænkuna á laugardagskvöldið. Til hamingju Bjarney, Baldi og strákar:)

Prófin eru búin. Ég veit ég er búin að ná 11 einingum. Nokkuð viss um 3 í viðbót. Verst að það eru ekki þær 14 einingar sem ég þarf... Kannski er ég samt bara svona stressuð afþví að ég þarf nauðsynlega að ná þessu, væri kannski sigurvissari ef þetta væri ekki svona mikilvægt. Ojæja, ég fæ eða fæ ekki símtal á miðvikudaginn... Stress!!

Það breytir því samt ekki að bæði á fimmtudaginn og laugardaginn er evróvision! Stórviðburður! Og djamm;) Svo verður víst útskriftardjamm 27. og Manhattan 28! Vúhú!:)