laugardagur

laugardagsblogg

Kjartan Kári á afmæli í dag. Til hamingju með það:)

Það er ótrúlegt hvað Damien Rice getur gert fyrir mig. Ég hlusta á hann áður en ég fer að sofa, þegar ég vakna, og þar á milli. Sum lögin hans eru heilög í mínum eyrum.

Það er mjög skrítið að vita eitthvað sem á pottþétt eftir að gerast, en ekki fyrr en eftir einhvern tíma. En ég held að það hljóti að gerast á endanum.

Leikritið okkar er að fá geðveika dóma! Enda mjög flott í alla staði...;) Í Mogganum segir m.a. "Grunnhugmynd Íslenska fjölskyldusirkusins er hreint frábær", "Ég hef fáar sýningar séð þar sem jafn stór hópur skilar jafn góðu jafnvægi milli stjórnlausrar orku og agaðrar nákvæmni. Að hópurinn skuli geta gert þetta svona ungur er ekkert minna en kraftaverk" og "Íslenski fjölskyldusirkusinn er einhver eftirtektarverðasta sýningin á fjölum borgarinnar í dag". Auk þess sem tónlistinni og búningunum er hrósað sérstaklega:) Ég mæli með að allir kíki á þetta og finni sýningu til að mæta á...;)

Skoðið líka sunnudagsmoggann, en þá á víst að koma grein um okkur:)

Bryndís mín á líka afmæli í dag! Líka til hamingju með það:)